3 skemmtilegar hugmyndir fyrir eldhúsið,
Ef að ég ætti örlítið fallegri hnífapör þá fengu þau að vera geymd í fallegum krukkum en ekki ofan í skúffum.
Og á meðan að við erum að tala um krukkur…
Þá er þetta líka töff hugmynd, að hafa öll bökunarhráefni í eins krukkum og leyfa þeim að njóta sín á hillu.
Og síðast en ekki síst þá er algjör snilld að hafa krítarvegg í eldhúsinu, sérstaklega undir innkaupalista og svo er gott að krota niður uppskriftina áður en hafist er handa.
:)
Skrifa Innlegg