Í gær kom ég heim eftir dásamlega viku á Tenerife með uppáhaldsstrákunum mínum og vá hvað þessi eyja er mikil paradís og áttum við fjölskyldan algjört draumafrí. Það er varla hægt að finna barnvænni stað en Tenerife, með leiksvæðum á hverju horni og dásamlegt viðmót allra til barna, svo vorum við einnig mjög heppin með hótel. Ég ákvað að gefa mér algjört frí frá tölvunni og tölvupósti sem er algjört met og ég kem því alveg endurnærð til baka í góða vinnuviku, ég var þó búin að tímastilla nokkrar færslur á blogginu fram í tímann til að bloggið færi ekki í líka í frí, og vá hvað það er mikið að frétta á Trendnet síðan ég kíkti síðast inn, 3 nýjir bloggarar! Ég vona að þið séuð búin að kíkja við hjá þeim Jennifer, Sigríði og Steinunni, ég er að minnsta kosti alsæl með þessa flottu viðbót:)
Ég byrjaði daginn snemma í dag, það þurfti jú að taka upp úr töskum, taka til og útrétta því ég var búin að bjóða heim í surprise “babyshower” handa uppáhalds Rakel minni sem kom heim í morgun í smá sumarfrí. Boðið heppnaðist ótrúlega vel en við höfðum allar skipt á milli okkar veitingum og ég keypti svo smá gjafir handa litla krílinu frá okkur sem voru hengdar upp á snúru voða krúttlegt, en það var órói, ungbarnahúfa, bangsi, samfellur og mokkasínur sem hún Linnea mín í Petit laumaði aukalega í pokann. Ég held ég fari ekkert út í smáatriði hvernig “skemmtiatriðin” voru…. en þau innihéldu m.a. brætt súkkulaðismakk úr bleyju, já ég hef greinilega frekar súran húmor:)
Mynd frá Instagramminu hennar Rakelar @rakelrunars
Þessi mynd lætur allt líta út fyrir að vera fínt hér heima, en nei nei það er það ekki:)
Mynd frá mínu instagrammi @svana_
La vie est belle ♡
Mögulega hápunktur lífsins hjá Bjarti að fara í apagarðinn á Tenerife, algjör draumur. Mæli þó með því að vera mætt við opnun til að aparnir séu svangir þegar þið mætið og þá eru líka mjög fáir í garðinum! Ég er eftir að fara í gegnum myndirnar úr myndavélinni en þessar eru allar af instagram, hvernig er það annars að láta framkalla myndir í dag? Ef þið lumið á góðum síðum með gott verð á ljósmyndaframköllun megið þið endilega skilja eftir línu.
Á morgun er ég búin að lofa mér að sjá um Trendnet snapchat sem við vorum að opna um helgina, mæli með að fylgjast með @trendnetis, en miðað við stöðuna núna þá þarf ég líklega að taka til í beinni en við sjáum þó til haha.
Skrifa Innlegg