fbpx

HOME

HeimiliPersónulegt

Ég tók þessa símamynd hér heima í dag. 

Eins og áður hefur komið fram bý ég í leiguíbúð og í stofunni minni er þessi hleri á veggnum, sem ég veit í rauninni ekkert alveg hvað er bakvið. Fyrst þótti mér hann vera ótrúlega truflandi, en mér líkar alltaf betur og betur við hann, ég mætti þó mála hann betur hvítan:)

Langur og góður dagur að baki. Byrjaði á að taka viðtal við hönnuðinn Sebastian Wrong sem er að starta nýju merki fyrir HAY, þaðan var haldið á blogghitting sem ég og Emma sáum um, en þar hittist góður hópur af íslenskum og erlendum bloggurum. Og núna var ég að skríða heim af lokapartý Hönnunarmars. Ég verð að viðurkenna að ég er smá glöð að Hönnunarmars er að klárast, bara einn dagur í viðbót:)

+++

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Svavar

    17. March 2013

    Hvað meinarðu, veistu ekki hvað er bakvið? Vissir nú alveg að ég byggi hérna!

    Búú

  2. Eva

    19. March 2013

    Hvar fékkstu þessa fallegu hauskúpu ?

    • Svart á Hvítu

      19. March 2013

      Þetta er baukur sem ég keypti nýlega í Urban Outfitters:)

  3. Thelma Rún

    20. March 2013

    Ókey Svana ég verð að fá að vita hvað er þarna á bakvið…ég væri löngu búin að kíkja ;)

    • Svart á Hvítu

      20. March 2013

      Hahahaha! Þetta er e-ð lítið rými eflaust bara með hitalögnum. Ég á bara erfitt með að sjá það ekki fyrir mér:) Væri líka fínt að geta nýtt það sem geymslu, er ekki með neitt slíkt í íbúðinni púúú!
      -Svana