fbpx

*Hjálp

HönnunIkea
Þessir vasar voru seldir í Ikea ekki fyrir svo löngu.
Vasarnir eru eftir Hellu Jongerius sem er hollenskur hönnuður og er í miklu uppáhaldi hjá mér.
ÉG ÞRÁI ÞENNAN VASA.
Og er tilbúin að kaupa hann af þér ef þú vilt selja mér þinn vasa!
Ég bölva mér ennþá að ég hafi ekki keypt þá í Ikea í Hollandi þegar þeir voru í sölu.
En hugsaði alltaf, “það verður svo erfitt að flytja þá heim, ég kaupi hann frekar á Íslandi.”
Ég óska helst eftir ljósbleika eða hvíta.
Ef að ÞÚ átt svona vasa og ert til í að selja mér sendu mér mail á svartahvitu@gmail.com
MBK Svana:)

SHE design og fatamarkaður!

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Anonymous

    14. November 2010

    Rosalega flottur vasi. Því miður á ég hann ekki, en ég vona að einhver eigi hann og vill selja þér hann.

    I feel your pain

    – GL

  2. gudrun j

    14. November 2010

    Mig langar einmitt svoo mikið í þessa vasa!! Er einmitt búin að vera reyna finna þá á ebay en ég finn ekki neitt! :(

  3. Elísa

    15. November 2010

    Prófið að auglýsa eftir þeim á Barnalandi. Það er yfirleitt vænlegt til vinnings að fara á Barnaland.

  4. Anna Margrét

    16. November 2010

    Ha ha jáá barnaland. Fólk selur ALLT þar inni. Ég pissaði í mig af hlátri þegar ég sá mynd af 3 cm styttu sem var verðsett á heilar 300 krónur þar inná. Kostar örugglega meiri tíma og peninga að fara svo og sækja dýrðgripinn en hann kostaði til að byrja með. Ah hvað ég hló. En svo fattaði ég að kannski þurfti manneskjan ægilega mikið á peningnum að halda.
    Þá hætti ég að hlæja :-O