fbpx

Hitt og þetta

Hitt og þetta

***
Svart á hvítu MKA Olsens

Var á búðarrölti í allan dag á Laugaveginum og þar í kring.

Eigum við eitthvað að ræða það hvað Einvera er falleg búð, systurnar greinilega vel með á hreinu hvað er helst í tísku í dag. Svo gaman af öllum nýju búðunum líka í miðbænum.
Hef reyndar ekki komið þangað í nokkra mánuði svo það var margt nýtt að sjá fyrir mig.

Vil svo benda á rosa skemmtilegan markað á Hressó þar sem ungir hönnuðir eru að selja vörurnar sínar, flíkur, skart og spil. Margt mjög flott þar til sölu:)

Svo á miðjum Laugaveginum er líka markaður í stóru rými hliðina á Spútnik og Skífunni? En þar er einn yndælis strákur að selja rosa rosa kúl plastúr á 1500kr!!! Sá að það er verið að selja eins í Gyllta kettinum á 4þús… Til í mörgum litum, ég fékk mér svart og vinkona mín fékk sér hvítt. Mæli með að kíkja þangað líka!:)
Svo ilmaði vinkona mín alveg hrikalega vel í dag mmmm..
Bað hana að segja mér hvað hún væri með á sér og var það nýja línan frá Dolce and Gabbana.
Man ekki nr.hvað ilmurinn var en það er bleiki ilmurinn.
Ég man að ég var að skoða þetta í París í vetur og þessi ilmvötn eru alveg málið.
Ein besta lykt sem ég hef fundið hingað til namminamm!!:)

-S

Maria Nilsdotter

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Anonymous

    26. December 2009

    Þetta í gyllta kettinum er too late úr og ég held að þau séu bara með þau í umboðssölu, fást líka í meba og e-ð. þau eru í ábyrgð en ekki hitt sem þý varst að kaupa en öurgglega sama dótið samt :)