Þið munið kannski eftir henni Rakel sem stofnaði Svart á hvítu bloggið með mér í upphafi. Hún býr núna í Leicester þar sem hún er að læra master í fashion management og ég sakna hennar ó svo mikið. Ég hef ekki ennþá heimsótt hana, en hún hefur hinsvegar komið sér mjög vel fyrir og ég leyfi mér að stelast að birta nokkrar myndir af instagraminu hennar (sem hún verður kannski ekki mjög kát með haha). @rakelrunars
Þessa fínu myndavél benti Rakel mér á að hægt væri að nálgast ókeypis hér í hárri upplausn.
Þetta er hún Rakel mín og Emil sætabaun.
Skrifa Innlegg