fbpx

HEIMA HJÁ DONNU KARAN

Heimili

Heimili fatahönnuðarins Donnu Karan á Manhattan er mjög fallegt, stíllinn hennar er vissulega dýrari en minn en þetta heimili þykir mér vera æðislegt. Litapallettan samanstendur af svörtum og hvítum en það er ótrúlegt hvað lifandi plönturnar á heimilinu gera mikið, án þeirra væri það ekki jafn djúsí.

Nokkrar persónulegar myndir, takið eftir myndinni af henni ásamt Dalai Lama…

Mjög elegant og glæsilegt heimili:)
P.s. til hamingju Trendnet með 1. árs afmælið. Í tilefni þess verða nokkrir lesendur heppnir í dag því að við ætlum að gefa 25 vinninga út allann daginn til random lesenda sem fylgja okkur á Facebook og Instagram, þar er t.d. hægt að merkja sitt trendmóment með #trendnet!
Ég vel seinna í dag heppinn lesenda sem fær mjöööög djúsí vinning:)

INNLIT HJÁ STÍLISTA

Skrifa Innlegg