Ég hef verið í mestu vandræðum nýlega.
Mér þykja stofuveggirnir mínir í nýju íbúðinni vera svo fallegir að ég fæ mig ekki til að negla í þá. Hvítur panell sem þekur veggi og loft.. mmmm
Og því liggja hinar ýmsu myndir í bunkum á gólfinu og stóri Ikea rókókó myndaramminn minn var sendur í fóstur alla leið til Hafnarfjarðar.
En ég er komin með góða lausn!
Ég fékk mér litaða teiprúllu í Epal og núna verður sko leikið sér.
Bíðið bara!
:)
Skrifa Innlegg