fbpx

Freistingar…

HeimiliHönnun
Það er erfitt að standast freistingar en stundum má nú leyfa sér smá. 
Það er kominn nýr heimilismeðlimur og bið ég hann hjartanlega velkominn!
Elsku fallega Pinochio teppið frá Hay.
Og þessi dýrindis hálsfesti frá GK sem ég er sannfærð um að færi mér heppni

Oooog á morgun í tilefni föstudags og nýrri sendingu á haustvörum er opið til 20.00 í GK, heitt kakó og meððí og svo fær heppinn gestur glaðning.  úllalla mæli með að kíkja við !

Mosi

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. Anonymous

    30. September 2011

    Takk fyrir skemmtilegt blogg.
    Má ég spyrja hvaðan þú keyptir teppið og hvað það kostaði?

    Kv. blogg fan.

  2. Berglind

    30. September 2011

    Váhá hvað þetta teppi er töff!..

  3. Anonymous

    30. September 2011

    oooo ég ELSKA þetta teppi … kostar litla teppið ekki 100þ í epal ?

  4. Svart á hvítu

    30. September 2011

    Ég keypti það jú í Epal, en stærra teppið er á um 100þús+, en mig minnir að þetta hafi verið á um 53þús? Tók það fyrst í heimlán svo ég er eftir að ganga frá greiðslu híhí. En minnir að það hafi staðið 53þús á reikningnum:)
    -Svana

  5. Anonymous

    30. September 2011

    Vá hjartað tók aukakipp! Þetta er draaaumamottan mín og er á innkaupalistanum mínum! :) Ég var akkúrat að senda fyrirspurn á Epal núna fyrir nokkrum dögum um hvað þessar mottur kosta og fékk svar um að litla mottan (90 cm) kosti 61.000 kr. og stóra mottan (140 cm) kosti 161.300.

    Þeir sem hafa tök á að kaupa hana í Danmörku fá hana á 42.990 kr. eða 107.500 kr.

    Tinna

  6. Anonymous

    30. September 2011

    Til hamingju!! Hún er aðeins of falleg :)

    -KT

  7. Anonymous

    30. September 2011

    Ég vil bæta því við að ég er augljóslega ekkert klikkaðri en þú þegar það kemur að því að kaupa inná heimilið!! Og enn og aftur til hamingju með teppið.. ef ég fæ að sitja á því þá skal ég setja “frátekið” merki í Eames stólinn minn (fyrir þig) alltaf þegar ég býð ykkur heim ;)

    -KT