fbpx

Persónulegt

Góða kvöldið, þetta er mögulega ein óvenjulegasta færslan frá mér, enda er ég ekki mikið fyrir að blaðra um sjálfa mig á þessum vettvangi hvað þá að birta myndir af mér:) En fríið mitt tók smá u-beygju þar sem við Andrés ætluðum að halda norður í vikunni en þegar ég heyrði í systur minni á mánudaginn (sem var ófrísk) að það ætti að setja hana af stað daginn eftir þorðum við ekki annað en að ílengjast í Skorradal þar sem við höfðum það mjög ljúft og gátum auðveldlega stokkið í bæinn. Litli snúllinn lét þó heldur betur hafa fyrir sér og kom ekki í heiminn fyrr en í nótt. Hann er það allra dásamlegasta sem ég hef séð og það er líka búið að gefa honum mjög fallegt nafn, en ég bíð með að birta það svona þar sem Hildur systir er ekki einu sinni búin að samþykkja þessa færslu;)

Ég læt þetta gott heita af þessum draumaprins, og skunda aftur í fríið. En mikið skil ég núna suma foreldra sem birta endalausar myndir á facebook af krökkunum sínum.. ég er búin að drekkja vinkonum mínum á snapchat og hann er ekki einu sinni minn eiginn:)

Þangað til næst:)

FRÍ

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Helgi Omars

    26. July 2013

    Til hamingju med litla prinsafrændan! Gaman ad sja svona fallega & personulega færslu fra ther! xx

  2. Áslaug Þorgeirs.

    26. July 2013

    Hann er svo heppinn að eiga þig sem frænku – Það sem þú átt nú eftir að drekra hann, haha :*

  3. Fatou

    26. July 2013

    Til hamingju með litla Svana mín :)

  4. Agla

    26. July 2013

    Endalaust sætur og ég elska snöppin frá þér ;) hlakka til að knúsa hann!

  5. SigrúnVíkings

    26. July 2013

    Hann er yndislegur <3 hvað er betra en að eyða fríinu í að dást af svona flottum prins!

  6. Sigríður Erla

    27. July 2013

    Vá hvað hann er flottur :) Innilega til hamingju með litla frænda!

  7. Kristbjörg Tinna

    29. July 2013

    Ég hlakka svo til að hitta hann!! Elska snöppin og hamingjuna sem hann gefur ykkur. Yndislegur í alla staði :)

  8. Bára

    30. July 2013

    Til hamingju með litla krúttið.