fbpx

FALLEGASTA BÚÐ Í HEIMI?

BúðirFyrir heimiliðUppáhalds

Systir mín er stödd í Bandaríkjunum um þessar mundir, og að sjálfsögðu er ég búin að hlaða á hana lista af hlutum sem ég “verð” að eignast. Ótrúlegt hvað maður vill oft byrja að hamstra þegar einhver nákominn manni ákveður að skella sér í smá frí þangað. Það allra fyrsta sem ég hugsa um þegar mig vantar e-ð frá Ameríku, er ekki eitthvað frá Target eða Victoria’s secret… heldur Anthropologie! Það er nefnilega ein fallegasta búð sem til er á jarðkringlunni og þið ykkar sem kannist ekki við búðina -skrifið niður nafnið:)

Þetta er fullkomin búð að mínu mati, það er eitthvað að finna fyrir alla sem hafa áhuga á fallegum hlutum. Ég get auðveldlega sett saman minn óskalista en á sama tíma getur einhver með gjörólíkan smekk mínum líka fundið fullt af fallegu fyrir sig. Það eru þó ekki bara hlutir fyrir heimilið að finna þarna, það er úrval af fötum, skóm, ilmvötnum, skarti og bókum. En allt saman öðruvísi en þú finnur í öðrum verslunum, eitthvað svo sérvalið fyrir þig:) Ég myndi lýsa stílnum þarna sem þannig að þú þarft bara nokkra hluti þaðan til að fullkomna heimilið þitt, þetta er svona “punkturinn yfir i-ið”.

Þjónustan þarna er líka ofsalega góð og þér líður eins og eftir góða fjársjóðsleit þegar þú gengur þaðan út með fullann poka. Ég tók saman nokkra hluti í flýti af vefsíðunni þeirra sem ég gæti vel hugsað mér að eignast.

Þar sem að systir mín er þegar að koma heim með barnavagn handa mér ásamt öðrum barnavörum ákvað ég að takmarka þennan óskalista minn og bað um Remodelista bókina sem mig hefur lengi langað í, og svo er ekki hægt að fara þangað inn án þess að kippa með sér nokkrum Völuspá kertum. Æðisleg kerti og kosta ekki nema brot af verðinu sem þau fara á hér heima, eða um 17 dollara stóru kertin sem gera um 2þúsund krónur.

Það er MUST að heimsækja Anthropologie ef þú átt leið til USA.

En ef þig langar bara að dreyma smá þá er vefsíðuna þeirra að finna -hér.  

STÍLISERAÐ HEIMILI FRÁ A-Ö

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

7 Skilaboð

  1. Bára

    9. May 2014

    SNILLD !! Þessi fer á “to do” listann fyrir sumarið :)

  2. Rakel

    9. May 2014

    Anthropologie er æði! Hún er líka staðsett í London þannig að Lundúnafarar ættu ekki að láta þessa framhjá sér fara!

    • Svart á Hvítu

      9. May 2014

      Vá hvað ég var búin að gleyma því…. man samt ekki til þess að hafa farið í hana þegar ég fór til London í fyrra hmmmm

  3. Guðrún Vald.

    9. May 2014

    Ég er svo sammála, ég fer alltaf í þessa búð þegar ég fer til USA og get í einni ferð keypt gjafir handa öllum og mér þrátt fyrir mismunandi smekk. Ég er að fara út í ágúst og ætla sko að kíkja þangað! :)

  4. Sandra Karls

    9. May 2014

    Oooooooh. þetta eru fallegustu búðir í heimi! og allar ólíkar. útstillingarnar í gluggunum eru guðdómlegar, þess vegna skoða ég oft #anthrowindows á insta þegar ég er að hangsa eitthvað.

    • Svart á Hvítu

      9. May 2014

      Ég ELSKA útstillingarnar, hef tekið ófáar myndirnar af þeim… Góð ábending með instagram, ætla að kíkja á það:)

  5. Elín Þórhalls

    9. May 2014

    Já nei nú vinn ég ekkert meira þar sem eftir er af degi – og þeir senda til Íslands… Kostar smá en hey, fyrir rétta hlutinn getur draumur orðið að veruleika