fbpx

EM DRAUMURINN

Hönnun

Ég veit ekki hvað kom yfir mig en ég hef verið hálf óvinnufær í dag og í gær útaf EM pælingum og legið yfir spjallþráðum í EM ferðagrúppunni og lesið endalausar fótboltafréttir og horft á enn fleiri video. Og ég sem hafði ekki áhuga á fótbolta fyrir korteri síðan og hef aðeins horft á tvo heila fótboltaleiki í sjónvarpi (já ég viðurkenni það). Áður en ég vissi var ég búin að safna í heilt albúm fallegri hönnunarvöru í íslensku fánalitunum… ótrúlegustu atburðir veita greinilega innblástur!

Rauð, blá og hvít fegurð fyrir heimilið.

Eins og staðan er í dag þá erum við hjúin ekki að fara út nema eitthvað stórfenglegt gerist, en þangað til þá leyfi ég mér að dreyma um fallega hluti í íslenskum litum og mögulega ferð í staðinn til Marseille í næstu viku á undanúrslitin ♡

Áfram Ísland!

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421111

HUGMYNDIR FYRIR HEIMILIÐ //

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Bryndis

    1. July 2016

    Hvar fæst þessi ljósakróna?

    • Svart á Hvítu

      1. July 2016

      heitir Icarus og er eftir Tord Boontje, ég keypti mína í París, -fæst s.s. ekki á Íslandi:)