fbpx

ELDHÚS DRAUMAR

Eldhús

Stundum velti ég því fyrir mér afhverju ég lærði ekki innanhússhönnun, en áhugi minn á slíku er gífurlegur. En svo fór ég að pæla hvort að starf innanhússhönnuða sé ekki erfiðara í dag en það var, með tilkomu vefsíðna eins og t.d. Pinterest þar sem góðar hugmyndir fyrir heimilið eru aðgengilegar öllum. En svo er það reyndar ekki allra að vinna úr þessum hugmyndum og aðlaga að sínu eigin heimili. Bara pælingar:) En hér að neðan eru falleg eldhús sem mig langar að deila með ykkur…

Ég er að útfæra góða hugmynd sem ég fékk nýlega, svo það eru breytingar á mínu lífi á dagskrá, það er nauðsynlegt að stokka upp í rútínu sinni af og til, annars staðnar maður bara:) Ég segji ykkur nánar frá þessu innan skamms.

Annars vona ég að helgin ykkar hafi verið ljúf. Svo er skemmtilegur instagram leikur Trendnets í gangi #trendsloggi fyrir áhugsama, ég kem til með að velja vinningsmynd kvöldsins og þið vitið mögulega hverju ég heillast af, en það þarf þó að vera einhverskonar sumarstemming í gangi.

-Svana

PINTEREST DAGSINS

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Pingback: INTERIOR JUNKIE » 10x koperen kranen