Síðustu dagar hafa verið þéttbókaðir af skemmtilegum viðburðum og broshrukkunum hefur aldeilis fjölgað. Í síðustu viku var ein vinkonan gæsuð, ég hélt gúrmet matarboð fyrir mínar uppáhalds og síðan var brúðkaupspartý um helgina sem toppaði öll partý sem ég hef áður farið í. Svo á ég nú aldeilis eftir að skella í færslu um Santorini ævintýrið mikla, en ég ætla að byrja á að birta myndir frá matarboðinu en ég fékk ófáar fyrirspurnir um uppskriftir eftir að hafa birt nokkrar myndir á Snapchat. Ég bauð upp á Santorini salat, kjúklingarétt með döðlum og fleiru og heimabakað brauð sem ég mæli með að prófa.
Ég viðurkenni að mér þykir skemmtilegra að leggja á borð en elda. Ég gat loksins notað rósagylltu iittala skálarnar í boðinu sem ég hafði verið svo spennt að eignast og hafði í þeim Santorini salat. Diskamotturnar bleiku eru frá Södahl (fást í Bast), hnífapörin voru keypt í Fjarðarkaup, og svörtu matardiskarnir eru mjög svo langþráðir Bitz (fást í Snúrunni, Bast og Dúka).
Brauðið er kannski ekki fallegt en þetta er í alvörunni allra besta og einfaldasta brauð sem hægt er að baka! – Þið verðið að prófa!
LÚXUSBRAUÐ MEÐ FETAOST & SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
600 gr. hveiti
1 bréf af þurrgeri
2 tsk. salt
500 ml. volgt vatn
– Öllu hrært saman , ekki hnoða því deigið á að vera blautt. Best er að hræra deigið kvöldið áður og passa að hafa skálina dálítið rúma. Setja skálina svo í ískáp í a.m.k. 8 klst.
Þegar deigið hefur hefast er það sett á bökunarpappír og rúmlega hálfri krukku af fetaosti bætt við ásamt u.þ.b. 5 sneiðum af sólþurrkuðum tómötum (best að kaupa þá sem eru niðursneiddir). Fetaosturinn og tómatarnir eiga að fara inn í deigið og þarf því að loka deiginu utan um. Gott að setja einnig feta ofan á deigið, og að lokum er olíunni af fetaostinum hellt yfir. Á þessu stigi lítur þetta mjög illa út en þá ertu líklega að gera þetta rétt. Settu svo vel af Maldon salti og smá af Gara Masala kryddi.
Bakað við 180″ í rúmar 45 mín.
SANTORINI SALAT
Engin hlutföll heldur eftir smekk:)
Paprika
Tómatar
Agúrka
Rauðlaukur
Fetakubbur
Oregano
Ólívuolía eða jafnvel góð hvítlauksolía
Allt skorið í bita og blandað saman og olíunni skvett yfir.
KJÚKLINGARÉTTUR BIRNU ANTONS
(Uppskriftin kemur upphaflega frá Valgerði Grétu Guðmundsdóttur í Eldhúsinu hennar Völlu)
1 kjúklingur eða bringur (eldaðar) skornar í strimla (um 600 g)
150 g spínat
100 g beikon í bitum
70 g döðlur smátt skornar
4 hvítlauksrif
1 msk. Oregano
3 dl vatn
2 dl matreiðslurjómi
3 msk. rjómaostur
1 kjúklingateningur
1 grænmetisteningur
Rifinn ostur eftir smekk
Beikon og hvítlaukur steikt á pönnu (ég sleppi beikoninu), síðan er döðlum, vatni, teningum og kryddi bætt við og látið malla.
Spínat sett í eldfast mót, kjúklingur sem búið er að elda fer ofan á. Rjómi + rjómaostur brætt saman og blandað við pönnuna. Öllu hellt yfir kjúklinginn og að lokum er ostur settur yfir og bakað í ofni á 180 gráðum í 20 mínútur.
Og svo fengu bökunarhæfileikar mínir að njóta sín með einni beint úr kælinum úr búðinni haha, sænsk kladdkaka eins og þær gerast bestar. iittala þemað á mínu heimili er ekkert nýtt, þessu hef ég verið að safna jafnt og þétt síðan ég var unglingur ♡
Santorini salatið erum við stelpurnar með á heilanum eftir stelpuferðina okkar. Ég var líka með þetta brauð í þrítugsafmælinu mínu en þá með allskyns ostum, hráskinku og öðru gúrmi og það sló alveg í gegn, ég var þó sjálf að baka það í fyrsta skipti núna og kom mér á óvart hversu hrikalega auðvelt það er, alveg fullkomið.
Látið mig endilega vita ef þið prófið!
Skrifa Innlegg