Þetta er æðislegt DIY verkefni, að skreyta litlar smáhlutahirslur. Svona box fást oft í þessum ódýru verslunum t.d. Söstrene Grene og Tiger sem eru báðar í miklu uppáhaldi hjá mér. Það eina sem þarf að gera er að prenta út mynd af einhverskonar áferð, tré, steypa, marmari, hár… Og svo er myndin klippt út og límd á boxið. Ítarlegri upplýsingar er að finna hér.
Hentar vel undir skart, teygjur, tepoka, og svo margt annað smádót:)
Fallegt ekki satt?
Ps. hér til hliðar er kominn linkur á facebooksíðu Svart á hvítu → → → →
Mæli með að klikka á hann:)
Skrifa Innlegg