fbpx

BLESSUÐ BLÍÐAN

Fyrir heimiliðRáð fyrir heimilið

Þar sem að sumarið hefur ákveðið að láta ekki sjá sig næstu vikuna er þó tilvalið að koma heimilinu í smá sumarskap. Hægt er að kalla fram sumarstemmingu á svo ótalmarga vegu…

Hafðu pottablóm á heimilinu og/eða afskorin blóm í vösum.

Skreyttu heimilið með litríkum púðum í sófanum.

Keyptu þér sumarleg handklæði fyrir baðherbergið.

Skræpóttar gólfmottur og litrík rúmteppi hressa við heimilið.

Málaðu einn vegg í lit.

Dragðu fram litríka og fallega flík úr skápnum og leyfðu henni að njóta sín upp á vegg eða fremst á fatahenginu.

Hugmyndirnar eru endalausar! 

MARKAÐURINN

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Dúdda

    3. June 2013

    Teppið á neðstu myndinni er ekkert smá fallegt! Veistu hvaðan það er ?

    • Svart á Hvítu

      4. June 2013

      Já það fæst allavega í Epal.. það er frá HAY eða Ferm Living, man það ekki 100% :)

  2. Líst vel á þetta! Sá einmitt ótrúlega skemmtilega skræpótta mottu inní Indiska um daginn – held ég verði að eignast hana ;)

  3. Kristbjörg Tinna

    4. June 2013

    Ég er augljóslega yfir mig ástfangin af efstu myndinni ;)