fbpx

Bleached


Jæks hvað finnst ykkur um þetta??
Aflitaðar augabrúnir!
Maður er að sjá þetta æ oftar, á tískupöllunum, í tískublöðunum… það virkar! oft mjög töff,
en ég veit ekki með svona hversdagslega í jogging-gallanum í Bónus.
Þeir úti spá því að þetta verði SO HOT næsta sumar!
Mér persónulega finnst augabrúnirnar skipta gríðarlegu máli, fyrir mig a.m.k, án þeirra er ég hálf nakin! Ég reyni að lita og plokka mínar allavega einu sinni í viku, þá eru allir sáttir :)
Ert þú búin að panta jólaplokkun og litun (aflitun)??
Haldiði að V.B. elti trendið?
***
P.S.!!! Jóladagatal Svart á hvítu fer á fullt á morgun, ekki missa af því!!
-R

e-label

Skrifa Innlegg

12 Skilaboð

  1. Bergrún Íris

    10. December 2009

    ég er allavega með alveg hvítar augabrúnir svo þetta myndi amk spara manni hellings vinnu ;)

  2. Anonymous

    10. December 2009

    Hey, ég hef aflitað þær og það er mega flott! Ég vildi að ég ætti mynd af því.

    Oflitaðar brúnir eru ógeð. Hollywood trendið til margra ára er að hafa þær í svipuðum lit og hárið á þér.. það er awesome.

    Ég er augnbrúnabrjálæðingur og pæli mikið í þeim- og ef maður aflitar skiptir samt miklu máli að “hirða” þær rétt, ekki bara aflita og búið. Maður verður að finna sér rétta penna til að móta þær, etc.

    Bless og p.s aðeins of langt komment.

    K.Lind /frigid

  3. SVART Á HVÍTU

    10. December 2009

    no way, mig langar að sjá! Gerðu það aftur og taktu mynd og sýndu okkur ;)

  4. Anonymous

    11. December 2009

    ætla klárlega að aflita augabrúnirnar fyrir næsta sumar!! :) fatou

  5. Inga

    11. December 2009

    Ég held eiginlega að þetta ætti ekki að fara mikið útaf pöllunum, mér finnst V.B hræðilegt svona! Ég veit allaveganna að þetta myndi fara mér alveg gasalega illa, en ég er alveg sammála, mér finnst of dökkar augnabrúnir alveg hræðilega ljótar. Ég hef mínar alltaf í sama/svipuðum lit og hárið.

  6. SVART Á HVÍTU

    11. December 2009

    hahaha Fatou ég held þú værir síðasta manneskjan í heiminum sem myndi aflita augabrúnirnar sínar!

  7. Bergrún Íris

    11. December 2009

    hahaha… ég verð að sjá Fatou með aflitaðar augabrúnir

  8. Anonymous

    11. December 2009

    ég verð eiginlega að viðurkenna að mér finnst þetta bara flott á þeim sem eru með ljóst hár, finnst alveg jafn hallærislegt að vera með hvítar augabrúnir og svart hár eins og að vera með mega ljóst hár og svartar augabrúnir. Au natural is the way fyrir mig.

    finst V.B líka ekki töff svona, nefið á henni óx um tvö númer við þetta :s Nútíma Gosi sem laug að pabba gamla :s

    -Valdís

  9. Anonymous

    11. December 2009

    Haha. Myndin af VB er photoshoppuð eftir þær sem eiga síðuna greinilega, búið að smugde-a andlitinu á henni einhvern veginn. Þess vegna er þetta hrikalegt. haha..

    En já ég var einmitt að pæla að gera þetta um jólin.. Set mynd á Frigid.

    :) Karen

  10. Anonymous

    11. December 2009

    NEI
    þetta er hræðilegt trend

  11. inga

    11. December 2009

    Það er búið að segja í alveg nokkur ár að þetta sé að fara að koma í tísku en er ekki alveg að sjá það gerast

  12. Anonymous

    16. December 2009

    Ég varð ekki neitt smá ánægð þegar ég sá þetta bregða fyrir á pöllunum fyrst! Ég er með svo ljósar augabrúnir au natural að ég þyrfti ekki að aflita þær. Svo er ég líka alveg hætt að nenna að lita ofan í þær, eintómt vesen og tímaeyðsla …hef sjálf verið á sýningu með mínar náttúrulega “aflituðu” augabrúnir og líka farið í myndatökur þannig og það hefur bara komið nokkuð vel út :D
    Er að meta þetta trend!

    Kv. Jenný