fbpx

ÁRIÐ MITT ♡

Persónulegt


Ég tók saman nokkra viðburði sem standa uppúr árinu mínu þegar ég lít til baka. Ég vil þó taka fram að þetta er mögulega bara áhugavert fyrir vini og fjölskyldu. Færslan er svo skreytt símamyndum í mjög lélegum gæðum, þið afsakið það! Það er mjög gott ár að baki sem ég er þakklát fyrir, ég kynntist ótalmörgu góðu fólki (og eignaðist fullt af fallegum hlutum) það sem stendur þó uppúr er fjölskyldan og vinirnir, væmið en þó satt:)

////////////////

Í janúar fagnaði ég 10 ára sambandsafmæli með Andrési mínum ♡

Stuttu eftir það var mér boðið til Frankfurt á hönnunarsýningu. Ég er orðin mjög spennt að fara aftur eftir nokkrar vikur, þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég geri, að vafra um sýningar og skoða nýja hönnun.

Í apríl bauð uppáhalds ólétta systir mín mér til Boston þar sem við versluðum allt sem þurfti fyrir komu erfingjans, borðuðum góðan mat og skoðuðum borgina sem er núna ein mín uppáhalds.

Í apríl tók ég svo þátt í minni fyrstu listasýningu í Gerðubergi og sýndi útskriftarverkefni mitt frá Lhí.

Hönnunarmars var tekinn með trompi þetta árið og kynntist ég á sama tíma ofurbloggaranum Emmu Fexeus og áttum við góðan tíma saman, besti Hönnunarmars so far.

Í sumar byrjaði ég í þjálfun hjá Lindu Jóns í World Class Það er búið að vera eitt það skemmtilegasta en á sama tíma eitt það erfiðasta við árið. Hún er erfið, ég er erfið og æfingarnar eru erfiðar. Þó hafa um 12 kg farið, (þangað til “eftirjól” mælingin er hoho). Eftir að ég kynntist Lindu fór allt í gang í hausnum á mér, ég þurfti virkilega að endurhugsa svo margt við sjálfa mig og læra mikið upp á nýtt. Ég hef margoft byrjað í hinum ýmsu átökum í gegnum árin og prófað flest allt en það hefur enginn náð til mín eins og Linda gerir. Það hefur kannski eitthvað að segja að ég er á sama aldri og krakkarnir hennar, hún gæti s.s. verið mamma mín, bara grimmari útgáfan af henni;) Svo skemmdi ekki fyrir að vera með aðgang í Baðstofuna sem er ein besta leiðin til að fá sig til að mæta í ræktina, það þarf nefnilega alltaf að verðlauna sig!

Screen Shot 2013-12-31 at 2.38.54 PM

Í maí var haldið á Beyoncé tónleika í London með bestu vinkonunum, það er ein skemmtilegasta utanlandsferð sem ég hef farið í, án efa einn af hápunktum ársins. Það toppar jú enginn Queen B og stelpuslúður. Ferðin endaði í Leicester ásamt köllunum okkar þar sem við tróðum okkur í litlu íbúðina hennar Rakelar. Mjög góðar minningar.

Screen Shot 2013-12-31 at 2.36.12 PM

Einn af mínum draumum rættist í sumar þegar við eignuðumst kisuna okkar hann Betúel (stórir draumar haha!).

IMAG3089

Í lok júlímánuðs átti systir mín sitt fyrsta og langþráða barn, hann Svein Rúnar sem hefur brætt mig upp til agna frá fyrsta degi.

Screen Shot 2013-12-31 at 3.47.04 PM

(Mynd af snappchattinu mínu) :)

Sumarfríinu var eytt í tjaldútilegur, sumarbústað í Skorradal með góðum vinum og á fegursta stað Íslands, Vestfjörðum.

Screen Shot 2013-12-31 at 2.43.05 PM

Ég og Andrés fluttum enn eina ferðina, í þetta skiptið stoppum við þó vonandi í lengri tíma þó að íbúðin sé sú minnsta hingað til:) Þröngt mega sáttir búa.

Screen Shot 2013-12-31 at 2.38.30 PM

Árshátíð saumaklúbbsins stendur alltaf uppúr, eintómir snillingar þar á ferð:)

IMAG2010

Okkur Andrési var svo boðið í glæsilegasta brúðkaup sem við höfum farið í hjá Svövu frænku og Skúla, yndislegur dagur og kvöld sem seint verður toppað:)

1184991_10151565618901434_207383060_n

Screen Shot 2013-12-31 at 2.34.40 PM

Ég fór svo til Eindhoven og Amsterdam í október á hönnunarsýningu og samgladdist góðum vinum sem voru að útskrifast. Ljúfsár ferð þar sem að ég kvaddi marga góða vini sem ég sé fæsta aftur, en sem betur fer var mikið skálað!

Ég sagði svo upp í vinnunni minni í lok árs og er þessa stundina atvinnulaus en sátt, það er jú það eina sem skiptir máli.

Screen Shot 2013-12-31 at 2.43.52 PM

Það er svo ótalmargt sem ég hlakka til að deila með ykkur á næsta ári, ég finn nefnilega á mér að þetta verði besta árið mitt hingað til. Ég þakka kærlega fyrir lesturinn á árinu sem er að líða, eigið gott kvöld.

Áramótakveðjur, Svana

c7ae82de84f29736c7edc13fbb18a24e

 

 

FULLKOMIÐ BAÐHERBERGI

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Katrín Brynja

    31. December 2013

    Knús á þig elskulega, yndislega, skemmtilega, hlýlega, sniðuga mannvera <3 þú ert einstök á svo margan hátt. Lovjúbeibígirl, kbh

  2. Kristbjörg Tinna

    1. January 2014

    Gleeyt nýtt ár elsku Svana. Megi komandi ár vera jafn gott og 2013 var <3

  3. Dúdda

    1. January 2014

    Gleðilegt ár Svana og takk fyrir bloggárið. Blog guð þitt er alltaf eitt af mínum uppáhalds. Vona að draumar þínir rætist á næsta ári

  4. SigrúnVíkings

    2. January 2014

    Gleðilegt nýtt ár elsku Svana! Gott ár að baki og eitt betra tekur við ;) Fór yfir liðið ár á sama tíma og ég las um þitt, og fattaði að við hittumst ekkert árið 2013!!! tek það á mig… það verður bætt upp árið 2014 :D ætli það sé ekki komin tími á eins og eina íslandsför á næstunni :-)
    Góða ferð inní nýja árið og ég hlakka til að sjá hvaða spennandi verkefni taka við hjá þér!

  5. Agla

    6. January 2014

    Aww en hvað þetta er skemmtileg færsla <3 Svo gaman að líta yfir farinn veg í lok árs.

    Elska flipp myndirnar okkur af skemmtilega stelputjúttinu okkar í apríl ;) Tökum fleiri svona skemmtileg kvöld á nýja árinu!

  6. Þóra Margrét Jónsdóttir

    8. January 2014

    Flott blogg hjá þér alltaf! Hvar fær maður svona kopar kúlu ljós ?

  7. Þóra Margrét Jónsdóttir

    14. January 2014

    takk takk :)