Lyngby glervasi situr ofalega á óskalistanum mínum þessa stundina, en það er ekki langt síðan að glervösunum var bætt við línuna. Vasarnir eru einstaklega fallegir og svo einfaldir í útliti að ómögulegt væri að fá nóg af þeim. Lyngby vasarnir voru framleiddir á árunum 1936-1969 af postulínverksmiðjunni Denmark og hófst svo endurframleiðslu á þeim árið 2012 eftir að hafa verið ófáanlegir í 43 ár. Postulínsvasarnir eru einnig alveg ofsalega fallegir en glervasinn finnst mér sérstaklega fallegur undir sumarblómin. Talandi um sumarblóm, eru lúpínurnar ekki búnar að springa út?
Á ÓSKALISTANUM: LYNGBY VASI
![](http://trendnet.is/wp-content/uploads/svartahvitu/2015/06/418f61a0500bbefd0fad1c5b8f71112f-1.jpg)
![](http://trendnet.is/wp-content/uploads/svartahvitu/2015/06/R3.jpg)
Skrifa Innlegg