Í gær fagnaði ég þrítugsafmælinu mínu og átti alveg hrikalega góðan dag með fjölskyldunni og vinum. Dagurinn byrjaði á ansi ljúfum nótum en við Andrés trúlofuðum okkar eldsnemma um morguninn en ég fékk hring og blóm ásamt morgunverði í rúmið sem kom mér algjörlega á óvart. Við erum búin að vera saman í 13 ár svo mér verður líklega aldrei skilað uppúr þessu:) Ég var búin að ákveða að taka mér frí frá vinnu og byrjaði daginn á smá dekri og hitti svo mína bestu í lunch. Ég var líka með Trendnet snappið í gær svo einhver ykkar sáu mögulega brot af deginum:)
Ég get ekki hætt að horfa ♡
Við Rakel ákváðum að tríta okkur í hádeginu og fara út að borða, Sæta svínið varð fyrir valinu því okkur langaði að prófa eitthvað nýtt. Ég er nú almennt ekki oft að tala um mat hér á blogginu, en þeir sem eiga skilið hrós skulu fá hrós. Ég er alveg agalega skotin í matnum þarna og enn skotnari í þjóninum okkar sem var algjör æðibiti og söng fyrir mig afmælissönginn sem gladdi mig mikið. Ætla að gera heiðarlega tilraun að setja inn video-ið hér að neðan.
Við deildum nokkrum réttum saman og smökkuðum líka eftirréttina sem voru hriiiikalega ljúffengir. Við rúlluðum bókstaflega út og ég gat varla snert við kvöldmat í gærkvöldi en planið var að fara út að borða méð Drésa til að halda upp á daginn haha.
Þessi er algjört æði… skammar mig mögulega að setja myndina á netið. Ólétt og agalega sæt:)
Mæli með þessum stað:)
Er ekki alveg nauðsynlegt að tríta sig aðeins á afmælisdeginum? Ég var búin að vera svo bilað skotin í fjaðrakúst í Farmers Market sem er þó frekar ópraktísk kaup og ákvað að leyfa mér hann í gær.
Og þessi lopapeysa fékk líka að fylgja með í pakkanum, núna er bara að plana útileguna:) P.s. bara til að það fari ekki á milli mála þá greiddi ég fyrir vörurnar. Ég er þó búin að slá met í myndbirtingum af sjálfri mér í þessari færslu, hefur aldrei gerst áður og mun líða langur tími þar til næst haha. Í gær var þó aðeins byrjunin á afmælinu, ég á von á allri fjölskyldunni heim á morgun og í næstu viku ætla ég að skála í nokkra kokteila með vinkonunum. Ég kveð í bili, þessi þrítuga og trúlofaða! Eigið góða helgi x
Skrifa Innlegg