fbpx

♪♫•*¨*•.¸¸♥Jólagjafirnar mínar ♥¸¸.•*¨*•♫

Hitt og þetta
Jólin hafa verið ansi ljúf, eiginlega aðeins of ljúf.
Við stöllur höfum ekki verið duglegar að skrifa hér nýlega en það mun allt fara á fullt aftur innan skamms.
Hinn helmingurinn minn kemur heim frá Englandi seint í kvöld og ég fæ þá að sjá allt góssið sem hún hefur verslað sér síðustu vikuna. Sjálf hef ég eytt tímanum í faðmi fjölskyldunnar og vina enda hitti ég þau líklega næst eftir 7 mánuði…

Ég er í skýjunum yfir jólagjöfunum sem ég fékk í ár og á ekki til orð hvað fólk er gjafmilt á þessum tímum…

Ég fékk yndislegan vintage pels sem mig hefur lengi langað í

Draumamyndavélina mína. 
Ég hef verið myndaóð síðan ég tók þessa elsku upp, alveg mögnuð vél!

Besta meik sem ég veit um… elska bara allt frá MAC

Nærföt frá Victoria Secret, þægilegri brjósthaldara er ekki hægt að finna. Var búin að slíta mínum gömlu í gegn af of mikilli notkun. Fer ekki í annað…
Æðisleg vetrarstígvél frá Bianco, mín eru reyndar brún svipuð þessum hmm.. love them
Svo var nú margt margt fleira fallegt sem ég gæti talið upp.

Vonandi áttuð þið yndisleg jól líka:)

Og hvað fenguð þið fallegt í jólagjöf??

***

Var á smá Laugavegsrölti í dag og kíkti í Emami búðina þar í fyrsta sinn, vissi ekki að þær væru komnar með heila línu af fötum. Hélt alltaf að Emami væri bara einn kjóll! En leist vel á eitthvað þarna inni sérstaklega þennan jakka og kápu. Very næs… en of dýrt fyrir mína buddu.

-S

Springtime

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Anonymous

    30. December 2009

    Bjútífúl stígvél, ég fékk líka skó úr Bianco í jólagjöf! Ég hataði það sko ekki ;)

    Auður B.

  2. Anonymous

    6. January 2010

    Hvar er hægt að fá svona fínan vintage pels? :)

    kv. lesandi

  3. SVART Á HVÍTU

    6. January 2010

    Pelsinn sem ég ég fékk í jólagjöf er úr Spútnik. En myndin í færslunni fann ég hinsvegar á google híhí:) Það eru til margir pelsar í Spútnik og í Nostalgíu á Laugarveginum. Svo er oft hægt að finna flotta pelsa í Kolaportinu eða þá á fatamörkuðum!
    Það þarf heppni að finna rétta pelsinn:)
    Gangi þér vel.