Það fer ekki illa um bloggarann Rebeccu Centren á þessu fallega heimili sínu, hún bloggar á Modette.se og deilir hún þar ýmsum tískutengdum myndum og inná milli myndum af heimili sínu sem er nokkrum númerum of fallegt. Hún virðist líka hafa fylgt hverju einasta tískutrendi undanfarið ár, það er ekki hægt að neita því…kopar, marmari, svartir veggir, ljósaskilti, röndóttir veggir, ikea rand motta, hráir veggir og listinn heldur áfram!
Loftljósið frá FLOS eignaðist hún nýlega
Baðherbergið er frekar óvenjulegt, mjög hrátt í iðnaðarlegum stíl
Fataherbergið hennar er algjör draumur, svartmálaðir veggir, svartar innréttingar og svart teppi!
Myndir fengnar að láni frá Rebeccu Centren
Gullfallegt heimili hjá mjög smekklegri dömu.
Ég hefði ekkert á móti því að býtta við hana á nokkrum rýmum, þá sérstaklega fataherberginu!
Skrifa Innlegg