Það lítur allt út fyrir að ég hafi gleymt að skreyta um jólin? Ég hef allavega ekki ennþá gefið mér tíma í það, en svona lítur stofan mín út í dag:) Þarna má reyndar sjá nýja Svansteppið mitt frá Vík Prjónsdóttur! Það er jólagjöfin mín frá mér í ár og ég eeeelska það.
Það er reyndar aðeins meira en teppi, það er í fullkominni stærð til að henda yfir sig og nota þá einnig sem flík, eins og risavaxinn trefill/yfirhöfn, ég sver það:)
Þegar allt er spikk og span hér heima þá hef ég fyrir því að brjóta það saman… en oftast er það svona…
Haha það er ótrúlegt hvað kettir sækja mikið í ull, hann lætur það ekki vera!
Ég er vonandi ekki ein um það að vera ekki búin að jóla meira fyrir heimilið, ég hef þó ennþá einn dag í viðbót:)
Skrifa Innlegg