Á þessu fallega heimili búa hollensku hönnuðirnir Romy Boesveldt og Ilya Yashkin sem saman reka hönnunarteymið Studio Roof.
Það sem heillar mig allra mest við þetta heimili er eldhúsið, -með veggfóður inn á milli skápanna og fölbleikur veggurinn nær alveg upp í loft. Flesta hlutina hafa Romy og Ilya fundið á mörkuðum hér og þar en passa þeir vel inn í þennan rómantíska stíl.
Eldhúsið er mögulega of draslaralegt fyrir suma, en mér finnst ágætis jafnvægi vera hér á móti væmna bleika litnum og rómantíska veggfóðrinu. Gróf og opin innrétting, svartur krítarveggur við eldavél og ljósin hengd upp á mjög afslappaðann hátt.
Viðtalið og fleiri myndir er hægt að skoða hér.
Skrifa Innlegg