Við vorum að rökræða tattoo í vinnunni í dag, en ég persónulega hef ótrúlega lítinn smekk fyrir slíku. En þá mundi ég eftir fína tattoo-inu sem uppáhaldsbloggarinn minn, hin hollenska Ivana Carpio er með.
Bloggið hennar heitir Love-Aesthetics, og tattoo-ið hennar er einmitt í takt við það sem bloggið heitir..aesthetics eða fagurfræði.
Kærastinn hennar fékk sér þetta nýlega í stíl við Ivönu.
Og svo nokkrar myndir frá heimilinu hennar svona svo þetta eigi nú meira erindi hingað inn á SÁH:)
Hér má finna bloggið hennar.
Skrifa Innlegg