// Búið er að draga út heppna vinningshafa og voru það þær Þóra Karolína og Gígja Þórðardóttir sem höfðu heppnina með sér.
Ein af mínum uppáhalds verslunum DIMM opnaði á dögunum glæsilega og stærðarinnar verslun í Ármúla 44, en hingað til hefur DIMM verið ein fremsta vefverslun landsins. Ég samgleðst þeim DIMM stöllum alveg innilega að hafa opnað drauma verslunina sína og dáist jafnframt að öllum þeim sem byrja með lítinn rekstur, lítil vefverslun í þeirra tilfelli og á ótrúlega stuttum tíma er hún orðin ein glæsilegasta verslun landsins. Ég kíkti í heimsókn og fékk að taka nokkrar myndir og það gladdi mig ógurlega mikið þegar mér var boðið að gefa tvo vinninga í gjafaleik til lesenda minna.
DIMM býður upp á mikið úrval af fallegri gjafavöru, fínerí fyrir barnaherbergi, sælkeravörur, hönnun fyrir heimilið og núna hefur einnig bæst við einstaklega falleg gerviblóm frá einum þekktasta hönnuði Bretlands, Abigail Ahern sem eru ótrúlega raunveruleg. Það verður líklega mitt fyrsta verk þegar við flytjum inn á heimilið okkar að kíkja við og næla mér í vönd.
// Taktu þátt í laufléttum gjafaleik og þú gætir unnið glæsilegan púða í lit að eigin vali frá Louise Smærup ásamt risa trylltum Pampass stráum. Lestu leiðbeiningarnar neðst í færslunni til að taka þátt.
// Ég fékk ekki greitt fyrir þessa færslu en Dimm gefur vinningana í leiknum.
HVERNIG SKAL SKRÁ SIG TIL LEIKS ♡
Skráðu þig í pottinn og þú gætir unnið púða í lit að eigin vali frá Louise Smærup ásamt þremur Pampass stráum (búnt) og er vinningurinn að andvirði 20.960 kr.! Einu skilyrðin eru að fylgja DIMM á Instagram @dimmverslun. Þegar það er orðið klárt skráir þú þig hér að neðan í athugasemd. Auktu vinningslíkurnar með því að skrá þig einnig í pottinn á instagram síðu Svartáhvítu – sjá hér.
Tveir heppnir vinningshafar verða dregnir út mánudaginn 15. október.
Hér að ofan má sjá brot af púðaúrvalinu ásamt fallegu Pampass stráunum.
// Fylgstu einnig með á Instagram @svana.svartahvitu
Skrifa Innlegg