Í dag sá ég fallegasta jakka sem ég hef augum litið.
og hann hvíslaði að mér…. “ptzzz keyptu mig, ég lofa að halda á þér hlýju í allann vetur”
ó jiminn ef ég bara hefði haft á mér 69þúsund krónur í vasanum!
úff, það er orðið sárt hvað falleg föt eru of dýr fyrir minn vasa.
En ég hefði viljað taka með heim alla búðina, svo fallegar eru flíkurnar.
Ég ákvað að ég hefði þó efni á því að skoða og fann því þessar flottu myndir á heimasíðunni þeirra, því miður engin mynd af jakkanum flotta.
p.s myndirnar þeirra eru allar mega sega flottar
Inná heimasíðunni þeirra er svo skemmtilegt albúm sem heitir Musicians wearing Aftur
Jónsi uppáhaldið mitt
Og svo hún Björk okkar..
Þau eru bæði hrifin af Aftur
-S
Skrifa Innlegg