Zara fær topp einkunn fyrir að vera alltaf með puttana í því allra
nýjasta. Ég las einhverntíman að það tekur innan við 30 daga fyrir
Zöru fólkið að fá hugmynd að flík, teikna hana upp og útfæra, láta búa
hana til og koma henni í sölu í verslanir! Það finnst mér alveg
svakalega skilvirkt og fljótvirkt ferli…
Ég var búin að sjá þessa boli í Zöru í Kringlunni.
Til í svörtu, mosagrænu og gráu allavega, með axlaskrauti, very nice…
Augljós eftirlíking af þessum bolum frá Balmain…
En þetta er ástæðan fyrir því að við elskum Zöru :)
Skrifa Innlegg