Myndir: Ranvita La Cour og Rishi. www.happyliving.dk
Ég fæ ekki nóg af vinnustofu dönsku listakonunnar Tenku Gammelgaard. Ég hef undanfarið verið með augu (og eyru) opin fyrir vinnustofuaðstöðu í Hafnarfirði en án árangurs. Annaðhvort er nýbúið að gefa plássið eða að það sé of dýrt. Það sakar því varla að láta ykkur líka vita að ég sé að leita af litlu og ódýru vinnustofuplássi:) Endilega hafið mig í huga ef þið heyrið af einhverju!
-Svana
Skrifa Innlegg