fbpx

Varúð ljótir skór!

Ég hef verið að rekast á þessa skó á hinum ýmsu tískubloggum síðustu daga.
Mér finnst þær vægast sagt HRÆÐILEGIR og ég vona svo heitt og innilega að engin af mínum vinkonum eignist eitt par:)
En margar stelpur hafa verið að dást af þessum klossum.
Fyrir þær sem fíla svona þá rakst á einmitt á svipað par í Kolaportinu um helgina:)
næs??
TADA……
fást hjá konunni í horninu!
-S

vissir þú...

Skrifa Innlegg

20 Skilaboð

  1. Anonymous

    22. September 2010

    hahahahaha

  2. Anonymous

    22. September 2010

    Eru þetta for real sömu skórnir?? Finnst þessir á gellunni á efri myndinni lúkka mun betur.
    Eða??

  3. Anonymous

    22. September 2010

    Hahahaha SVANA!! þessir úr kolaportinu eru nú ekki alveg eins.. en mér finnst þessir efri ekkert VIÐBJÓÐUR en langar heldur ekkert að kaupa þá :).. en þessir úr kolaportinu eru auðvitað meira en ógeðslegir haha

    -KT

  4. Sara

    22. September 2010

    hahah! verð nú samt að viðurkenna að mér finnst þessir skór frekar flottir.. þessi efri þ.e.a.s :D

  5. HILRAG

    22. September 2010

    fíla þessa sem leighton var í miklu betur en þessi í koló eru snilld, haha. :)

  6. Anonymous

    22. September 2010

    hahaha, mér finnst þeir báðir frekar slæmir…

  7. Svart á hvítu

    22. September 2010

    Hahah mér finnst þeir sko aaalveg jafn slæmir!
    Mér myndi líða eins og ég væri með fílalappir í þessum hlunkum:)
    Ótrúlegt hvað suma tísku ég get hreinlega ekki skilið!

    -Svana

  8. Anonymous

    22. September 2010

    hahah ojjj þessir koló eru HORROR!!! En eftir, tja.. ekki flottir að mínu mati en kannski ekki sömu skórnir samt sem áður ;)

    EN ég er svo sammála vinkonu þinni með það að þessi skótíska í dag er að verða skuggalega lík buffaló viðbjóðnum! Ég er ekki alveg að meta þessa þróun.. veit um eina hárgreiðslukonu sem er ennþá í þessum Buffalo skóm og einum öðrum sem eru svipaðir nema með “svamp” botni.. geeðveikt háir! VIÐBJÓÐUR.. hélt enginn myndi láta sjá sig í þessu í dag. ÞAð sem það er búið að gera mikið grín af Buffalo .. haha

  9. Sigrún Víkings

    22. September 2010

    Haha Svana:) mér finnst þessir skór svo langt frá því að vera svipaðir! þessir neðstu eru ekkert smá ógeðslegir en þessir fyrir ofan eru mun skárri…
    Hef samt ekki náð að koma mér inní þessa klossatísku!

  10. Unnur

    22. September 2010

    ohh mig dreymir um þessa skó – gaman að smekkur er svona misjafn :)

  11. ólöf

    22. September 2010

    hahahaha! fyndin ertu. Þetta eru kannski ekki alveg jafn slæmir skór og þessir úr Kolaportinu (enda erfitt..ég nefni bara enn og aftur Louis Vuitton spring 2010 runway shoes ..ljótustu skór í heimi með loðskeggi) ..en mér finnst hinir skórnir ekkert meistarastykki heldur..

    ég veit ekki hvort mér finnist þessir eða Acne með stálbotninum ljótari..finnst vera smá spaceboots stemming í þeim báðum, ég myndi ekki ganga í þessu sjálf en ég fæ ekki sjokk eins og þegar ég sá LV skóna:P

  12. Anonymous

    22. September 2010

    Ég er svo sammála þér! Skil ekki hvað það eru margar búnar að slefa af þessum hrikalega ljótu klossum á efri myndinni. Svo skil ég heldur ekki hype-ið með Lita skóna frá JC. Mér finnst þeir alveg einstaklega ljótir á fæti :Þ

  13. Svana

    22. September 2010

    Já Lita skórnir eru nú skór sem ég læt vera að krítera vegna þess hversu margar stelpur slefa yfir þeim:)
    Ég myndi samt Aldrei ganga í þeim en þeir eru samt þónokkuð fegurri en þessir hér að ofan haha:)

  14. The Bloomwoods

    22. September 2010

    Ég er svo hjartanlega sammála þér, þessir skór eru viðbjóður!

    V

  15. Anonymous

    22. September 2010

    hvernig eru litaskórnir frá jc?

  16. svartahvitu

    22. September 2010

    Já ég myndi allavega ekki tíma 80þúsund krónum í þá:)
    Sumir skór eiga helst bara að vera uppí hillu sem skraut…
    -Svana

  17. Anna Margrét

    22. September 2010

    Ég ætla ekki að segja neitt um þetta því ég er hrædd um að eftir 2 mánuði mun ég vera einhversstaðar í búð, taka upp einhverja frænkuútgáfu af þessum klossum og gala yfir búðina:

    OMG ÞEIR ERU GEÐSJÚKLEGA SJÚKIR!!!!

    Ég sagði þetta fyrst um Pop Life skóna, muniði, sem voru til í öllum litum. Mér fannst þeir ógeð. Og jú nokkrum mánuðum seinna átti mín þá í öllum litum, með plast eyrnalokka í stíl; ógisslega sátt með lífið.
    Ég þori ekki að segja neitt lengur…..:-p

  18. ólöf

    22. September 2010

    mér finnst Lita fallegir..en ég myndi sjálf ekki ganga í þeim..og þá vegna hæðar en ekki útlits..en svona spaceboots stemming hentar mér frekar illa hehe