Ég er með langan lista af hæfileikaríku fólki sem ég fylgist með og sem veitir mér mikinn innblástur. Ein þeirra er hin norska Elisabeth Heier sem ég hef að öllum líkindum fjallað um áður en hún er ein af þekktustu norsku bloggurunum sem skipta eflaust þúsundum. Stíllinn er minimalískur og mjög ljós, hver hlutur er vandlega valinn svo hann passi við heimilið og það er einnig einhver ró sem fylgir þessum myndum. Ég get ekki annað en hrifist með þó svo ég gæti vissulega ekki búið hér. Fyrir áhugasama þá er bloggið hennar að finna hér og instagram hér.
Þið megið endilega skilja eftir ykkar uppáhalds bloggara eða instagram hér að neðan. Ég elska að uppgötva nýtt fólk sem deilir sama áhuga og ég!
Skrifa Innlegg