Mig hefur rosalega lengi dreymt um Copper shade frá Tom Dixon en á meðan ég bíð þá læt ég mér duga að eiga Ikea kopar ljós.
Það er töluvert ódýrara. Kannski ekki jafn fallegt, en fallegt er það:)
Mig langar líka í þetta ljós… en ég skellti upp úr þegar ég sá efstu myndina. Trip trap barnastóll ofan á skinni! Ég á bágt með að trúa að nokkur manneskja haldi þessari uppröðun lengur en svona eina máltíð. Mér finnst nógu leiðinlegt að þurrka undan barnastólnum á mínu heimili og hér eru bara trégólf, hvað þá LOÐIÐ SKINN. Ég geri ráð fyrir að stílistinn sem raðaði upp fyrir myndatökuna eigi ekki börn ;)
Mjög flott !
Hvenær keyptiru þetta kopar ljós í Ikea?
Skrifa Innlegg