Þetta mun vera elsta færslan af blogglagernum mínum sem ég uppgötvaði um daginn en hana ætlaði ég upphaflega að sýna ykkur árið 2012! Þá var þetta hótel alveg splunkunýtt en það ber einmitt heitið The NEW hotel og var hannað af heimsþekktu Campana bræðrum. Hönnun þess er eiginlega útúr þessum heimi svo öðruvísi er hún en hrikalega fersk og skemmtileg. Þó svo að færslan sé nokkura ára gömul þá er ég viss um að þessar myndir vekji ennþá áhuga en hótelið er jú ennþá opið ef þið eigið leið til Grikklands og viljið gista á öðruvísi hóteli!
Fyrir áhugasama þá er hægt að kynna sér hótelið betur hér.
Hversu klikkað er þetta hótel nú? Hrikalega flott hönnun Campana bræðra en þeir fara jú alltaf ótroðnar slóðir:)
Skrifa Innlegg