Einn uppáhaldsbloggarinn minn, hún Cindy hjá COTTDS (come over to the dark side) er ekki bara með flott blogg heldur er instagram-ið hennar líka afskaplega smart. Mér finnst hún vera alveg hrikalega flott pía, klæðist reyndar mest svörtu svo ef þú ert mjög litrík týpa þá mæli ég ekkert með henni fyrir þig:)
Ég byrjaði að fylgjast með henni þegar ég var búsett í Hollandi en hún er ein af þekktustu bloggurunum þar í landi og er í dag orðin nokkuð fræg fyrir bloggið sitt. Nafnið á blogginu er reyndar nokkuð lýsandi fyrir stílinn hennar “Come over to the dark side”, stíllinn hennar er frekar “dark” og hún smá töffari í sér, alltaf með úfið hár og mikið í leðurflíkum.
Sumir eru hreinlega alveg meðetta og hún er sko ein af þeim:)
Þið finnið instagram-ið hennar hér.
Skrifa Innlegg