Þessi fallega sænska íbúð er leigð út tímabundið fyrir ferðamenn (max 2) og er hún staðsett í SoFo í Stokkhólmi (besta hverfið)! Ég rakst á hana á netinu áðan og vildi endilega benda ykkur á, kannski er einhver ferðaglaður á leið til Svíþjóðar sem sér þetta? Frekar upplýsingar hér.
Þarna eru nokkrir hlutir sem ég ætla að eignast einn daginn… Api Arne Jacobsen, Componibili hliðarborð (þetta litla hvíta með 2 hirslum) og Panton standlampinn. Það má alltaf leyfa sér að dreyma smá, en ég held að einn af þessum hlutum komi með mér heim innan skamms. Mig vantar flotta hirslu á baðherbergið:)
Skrifa Innlegg