fbpx

Sól & Sumar

Hitt og þetta

Það er merkilegt hvað maður er sjúkur í þessa sól þegar hún loksins birtist!
Ég hef ekki snert tölvuna alla helgina, það er svo margt annað að gera í svona veðri að það síðasta sem manni langar að gera er að fara heim í tölvuna að blogga! Sem betur fer er Svana búin að hugsa um síðuna okkar á meðan ég hef verið að drekka í mig sumarið…

En við fórum svona að velta því fyrir okkur hvað við vildum gera við þessa síðu í sumar. Frá því við byrjuðum með síðuna hefur komið inn nýtt blogg á hverjum einasta degi, stundum nokkur blogg á dag, fyrir utan 1 eða 2 daga um jólin. Við gerum okkur grein fyrir því að við eigum ekki eftir að vera alveg svo duglegar í sumar og þar að auki mun lesendunum pottþétt fækka talsvert yfir sumartímann.
Þannig við ætlum að fækka bloggunum aðeins, kannski í 3-4 í viku, stundum oftar ef við erum í extra miklu stuði, bara í sumar… Vonandi fyrirgefiði okkur það!:)


G*L*E*Ð*I*L*E*G*T S*U*M*A*R


ZZzzzzz

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Karen Lind

    25. May 2010

    I feel you.

    Ég nenni þessu ekki lengur, og hef ekkert hugmyndaflug heldur. Sólin drakk þetta allt í sig! :-)

  2. Style Duo

    25. May 2010

    oh það verður mikið sakn hérna megin..

  3. Anonymous

    26. May 2010

    Mikið mikið sakn! Eruð með BESTU bloggsíðu á Íslandi!

    TAKK*

  4. Anonymous

    26. May 2010

    ooo plís ekki hætta…eitt á dag í minnsta lagi :D hihi

    æjj skil ykkur samt…það er bara svo gaman að lesa bloggin ykkar

    gleðilegt sumar!

  5. SVART Á HVÍTU

    26. May 2010

    JI maður roðnar bara!
    En já það sem Rakel meinti var að það verða allavega um 4 blogg á viku um hásumar.. en okkur finnst þetta nú obboslega gaman svo að ég stórefa að það verði svo lítið um blogg.. þótt þeim muni fækka einhvað:)
    Ég er allavega ekki enn komin í sumarfrí svo þeim fækkar ekki svona svakalega aaaalveg strax:)
    -Svana