Ég elska stór nördagleraugu.
Þau urðu vel áberandi síðasta sumar og verða vinsælli með hverjum degi.
Ég sjálf hef notað gleraugu síðan ég man eftir mér og eftir að ég eignaðist þessi hér fyrir ofan á síðasta ári hef ég sjaldan verið jafn oft spurð hvar ég keypti gleraugun mín.
Ég fíla nördagleraugu líka á strákum en þó fara þau ekki öllum vel.
Svo hef ég í auknum mæli séð fólk ganga um með stór gleraugu með bara plastgleri í sem mér þykir ekki fallegt, því að það kemur óeðlilega mikil speglun af þeim og kemur mjög illa út á myndum þar sem flassið endurspeglast of mikið í plastglerinu.
Mér finnst samt ekkert að því að fólk fái sér gleraugu þótt að það þurfi ekki að nota sjónstyrk en ég mæli þá með að láta setja gler í þau, en það kostar undir 10þúsund kr. í flestum gleraugnabúðum og er töluvert fallegra.
-S
Skrifa Innlegg