fbpx

DIY: Laugardagsföndur

DIY
Þessi fallegu hálsmen væri ég mjög mikið til í að eignast.
Virðist vera alveg einstaklega auðvelt!
Ég hefði sjálf valið aðra liti, en ég ætla mér pottþétt að prufa þetta DIY.:)

-S

Innlit.

HeimiliSkart















Þetta eru aðeins of fallegir skartgripir.
Langar í þá alla.
Kosta um 15-65 evrur og eru sendir útum allann heim.
Býst fastlega við að þau sendi þá líka heim á litlu krúttlegu eyjuna okkar.
Stúlkan sem gerir þá býr í Rotterdam en selur þá í engri búð!
Annars myndi ég nú skottast til hennar og máta kannski eitt stykki hring.
T.d þennan risavaxna ofur truflaða fallega silfurhring sem þið sjáið hér að ofan.
Svo er fuglahauskúpan hér að ofan líka trufluð.


kaupa HÉR

Íbúðin hennar virðist líka vera mjög kúl.
Hef ég nefnt áður að ég er með thing fyrir Hröfnum.
Væri helst til í Krummann eftir Jón Sæmund (Death)
Sá hann út í glugga á Skólavörðustígi.
Truflaður.
En kostar mange penge.
Hafiði séð hann??

-S

Guys Guys Guys

Nýr flokkur hjá okkur……Strákar
Því þeir eru jú svo sætir
Smá brot frá Fall/Winter 2o1o

Spurr
DKNY
Bottega Veneta
Band of Outsider
McQueen

-S

Hanneli Mustaparta


Hanneli er fyrrverandi módel, tískugúrú, stílisti og street-style ljósmyndari…


Hún heldur úti vinsæla blogginu Hanneli.com þar sem hún birtir aðallega street style myndir sem hún tekur, það helsta sem er að gerast í tískuheiminum sem og myndir af sjálfri sér…
Þessi mynd fór um allar helstu tískusíður heims og allar stelpur þráðu að eiga demantsskreyttan brjóstarhaldara!




Hún þykir með eindæmum smart og mikill trendsetter…


Hún er líka svolítið skemmtilega sérstök…
“I am against animals bred and killed solely for their fur. That’s why I always wanted a sheepskin fur, cause how many sheep are killed for the use of their meat and the fur just gets thrown away for nothing?”
Yfirhöfnin sem hún er í á myndinni til hægri er teppi sem hún hafði keypt sér nýlega fyrir sófann og elskaði það svo mikið að hún ákvað bara að fara í því út! kemur vel út…
Svo er þetta höfuðfat með eindæmum ljótt!
En henni finnst það brilliant þar sem það er gat fyrir taglið!



Krúttleg og sæt, með bleached eyebrows…


-R

Finnst ykkur þetta í lagi??

Hitt og þetta
Mæli með að lesa þessa grein frá Mörtu Maríu.
Kominn tími til að fólk líti smá í eigin barm.
Og hætti að STELA hönnun frá öðrum!
Það er EKKI í lagi!

Og svona fyrst ég er byrjuð, þá mæli ég líka með að kíkja á þetta blogg skrifað af Ólöfu Jakobínu fyrir stuttu þar sem hún sýnir nokkur dæmi af íslenskri hönnun og okkar ástkæra Íslandi sem er ofnotað í hönnun í dag.

-S

*Saum* Vikunnar

DIY
Eitt af ótalmörgu fallegu sem má finna á Lookbook var þetta cute blúndupils.
Ég var ekki lengi að fara í Virku og kaupa mér smá blúndu og sauma eitt svona…
…og svo stal ég stílnum hennar fullkomlega ;)
Þetta var alveg einstaklega auðvelt og ódýrt í framkvæmd…
-R

FACEHUNTER á Íslandi

Hönnun


Eins og allir sannir tískuunnendur vita fer Reykjavik Fashion Festival fram dagana 18-21 mars nk.


FACEHUNTER virðist ekki ætla að láta sig vanta en þetta er tekið beint af síðunni hans:

March 18-22: Reykjavik Fashion Festival

on the 18th: book signing party at Kronkron, Laugavegi 63B, 6.00 PM
on the 19th: Facehunter party at Venue, Tryggvagata 22, midnight



Þeir hönnuðir sem munu sýna á rff eru:

Andersen & Lauth
Áróra
Birna
Blik
8045
E-label
ELM
Emami
Farmers Market
Go with Jan
GuSt
Hildur Yeoman
Kalda
Lúka
Mundi
Nikita
Royal Extreme
Sonja Bent
Spaksmannsspjarir
Skaparinn
Sruli Recht
Thelma Björk


Látum okkur ekki vanta á þennan merkisviðburð!:

-R

Skart
Í hvaða lúxus björgunarhring festist konan í. Ég get hreinlega ekki hætt að horfa á þessi ósköp.
Anna Dello Russo á tískuvikunni í París.
Ég á ekki til nein orð.

-S

Karl who…

Hitt og þetta
“Believe it or not, I love rap!” hahaha

Ég sem hélt lengi vel að Karl Lagerfeld væri hrikalega stífur og boring, en svo er nú aldeilis ekki.
Er búin að lesa nokkur viðtöl við hann á netinu og hann er vægast sagt áhugaverður karakter.

Smá svona useless information í tilefni dagsins:)
Hann gæti ekki hugsað sér að eiga barn því það myndi eflaust ekki standast hans væntingar.
Hann getur ekki gengið um götur Parísar þar sem þær eru of skítugar fyrir hann.
Hann keyrir um á Hummer því hann vill ekki vera á sama leveli og við almúgurinn.
Hann er fasisti við sjálfann sig og fylgir ströngum reglum hvað varðar matarræði
(hann léttist um 40 kíló á sínum tíma.)
Foreldrar hans voru um sextugt þegar þau eignuðust hann
og 14 ára flutti hann einn til Parísar til að gerast hönnuður.
22ja ára fór boltinn að rúlla og hann vann risastóra fatahönnunarkeppni þar sem hann hannaði kápu.
Yves saint Laurent vann sömu keppni, en hann sendi inn kjól.
Hann kallar gleraugun sín Portable eyeshadow.
Honum finnst vond lykt af fátæku fólki sem verslar í second hand búðum.
Sagan segir að hann hafi ekki stundað kynlíf í um 20 ár.
Hann er einnig ljósmyndari og tekur margar myndir fyrir tískuhúsin sín, svosem Chanel og er með sitt eigið studíó.
Í fyrra lét hann það útúr sér að Heidi Klum væri of þung og væri því ekki hentug í tískusýningar.
Hann er með thing fyrir Nicole Kidman

En who cares, hann er samt ofurtöffari!
Og er by the way 77 ára gamall!
En hann neitar þó að viðurkenna það og segist vera 72ja ára haha.

-S