fbpx

mæli með…

Hitt og þetta
Þetta krem er æði… eitt að því sem ég er að stelast í á Hótel Mömmu, en ég er að njóta síðustu dagana þar áður en ég flyt í nýju íbúðina í vikunni.
En það heitir Mac moisturelush, mér finnst mjög gott að setja það á húðina undir farða og mér finnst það gera húðina smá ljómandi:) Ofsa fínt.
Svo voru þessir hlunkar keyptir í vikunni en síðustu 2 árin hef ég hægt og rólega prófað flest sjampó og næringu sem Tigi er með.. eða bara alla Bed head línuna eins og hún leggur sig og líkar mér ofsa vel.
En þessa stundina er hárið mitt í rústi eftir ofnotkun á sléttujárni og lítillar notkunar á hitavörn og var mér bent á að prófa Tigi Oatmeal and Honey línuna, en það er s.s “comfort food for damaged hair”. Mmmm og það er að virka.
Verst við Tigi sjampóin að mig langar helst að borða þau, fáránlega góð lyktin!
Svo fékk þessi að fylgja með, þetta er hársprey sem ilmar líka svo fáránlega vel að ég er farin að nota það sem góða lykt í herbergið mitt.
Hafið þið prófað þessar vörur?
Verst að það eru öll aukaefni sem til eru í þessum vörum, eða s.s allar tegundir af paraben:/
-s

miiiiiine...

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Margrét

    16. August 2010

    Mjög sammála þér þetta eru langbestu vörurnar!
    Hvar keyptiru svona stóra pakkningu? :)

  2. Anonymous

    16. August 2010

    já mér finnst þetta hársprey æði.

    Þessar vörur eru á alveg ágætis verði á asos.com -keypti mér svona stórar pakkningar þar.

  3. Anonymous

    16. August 2010

    Já, vesen með þetta paraben alltaf hreint. Ég er orðin mjög meðvituð að nota ekki vörur með paraben í. Gleymdi mér reyndar aðeins og keypti einmitt otameal & honey sjampó og svo Small talk thickifier. Hárið á mér hefur sjaldan verið betra! Er með mjög fíngert og erfitt hár, en er mjög ánægð með þessar vörur.

    Tinna

  4. Anonymous

    16. August 2010

    þessi hárnæring er dásamlega góð, love love love it.

  5. Anonymous

    16. August 2010

    Hvað gerir paraben?

  6. Anonymous

    20. August 2010

    Það eru til margar gerðir af parabenum og ekki allar sem eru taldar hafa áhrif á hormónakerfið. Sum eru semsagt talin í lagi.