fbpx

karton kindin mín

Hönnun
Ég hef áður skrifað um franska hönnunarfyrirtækið Ibride sem gerir alveg hreint gullfalleg húsgögn ásamt fleiru, t.d. ísbjarnarhillu og kindarborð…

En þar sem verðið á þessum fallega ísbirni er ekki mér bjóðandi (fer yfir 100þúsund)
þá varð ég smá glöð þegar ég fann Karton Winkel í Hollandi um daginn, en það er ungur hönnuður með þá búð sem sker út hin ýmsu dýr í karton!!

Well þessi mynd gerir elsku kindinni engan greiða, því hún er ansi kjút live.
Þessi kind fékk að fylgja mér alla leiðina heim til Íslands. Kærastanum til “mikillar” gleði haha, honum finnst ég stundum vera smá skrítin.
En ég borgaði um 30 evrur fyrir hana.
Í Karton Winkel er einnig hægt að fá dýrahausa eins og t.d. þennan:
Og þau eru með Webshop líka:)

-S

Cape

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Rakel

    10. August 2010

    súper sætur sauður!!:)

    -Rakel

  2. annamagga87

    10. August 2010

    Ég er ekki frá því að það sé svona karton dýr í versluninni Aurum þessa dagana. Nema mig hafi verið að dreyma….um karton dýr
    En mikið mikið fínt :-)

  3. Svart á hvítu

    10. August 2010

    Já Aurum er að selja hönnun eftir Ibride.. þessa dýru flottu:) Ég bloggaði um það fyrir stuttu.. Þau eru ekki úr kartoni, heldur við.
    En karton dýrin er svipup hugmynd bara mikið ódýrari:)
    -S

  4. Anonymous

    10. August 2010

    Uma.is
    er að selja hreindýrin veit ég
    svaka flott íslensk sölusiða:)