fbpx

kakkalakklakk


Ætlaði að tríta mig smá í dag og splæsa í 505 Chanel naglalakkið.
Neinei þá er það bara uppselt í nánast allri Evrópu!
En daman sagði mér þó að þeir hjá Chanel væru á fullu að hræra í naglalakkspottinum til að búa til meira. Bleika er þó líka mjög fallegt, en ég á þónokkur bleik fyrir.

Hnusss.
Er þetta líka sold out á hinu fagra fróni?
-S

Jak & Jil

Skrifa Innlegg

20 Skilaboð

  1. Anonymous

    1. March 2010

    Eitt hérna out of the blue, því þið eruð svo klárar og frábærar..
    Vitið þið hvort H&M sendir til Íslands? Ég finn það hvergi!
    Ég er hins vegar orðin ágæt í sænsku og dönsku eftir þessa miklu leit.

    kv. ein í vanda ;)

  2. SVART Á HVÍTU

    1. March 2010

    Hahah já það sakar ekki að læra smá sænsku í leiðinni.
    En mér þykir leitt að segja þér að H&M sendir ekki til Íslands:/
    Þá væri líka Iceland express líklegast farið á hausinn haha, engin ástæða fyrir allar kaupóðu kellurnar að skreppa til köben í smá shopping :)
    En mæli bara með að senda á einhvern kunningja í útöndum og hann eða hún áframsendi til Íslands:)

    -Svana

  3. Glys&Glamúr

    2. March 2010

    Heyrðu það er ekki einu sinni komið hingað :) Ég fór á fullt að leita fyrir nokkru síðan en það var ekki til í “umboðinu” á Íslandi og hefur ekki verið til.. Ever hér á Fróni! Alveg glatað…við erum alltaf nokkrum mánuðum eftir á :(

    Love,

    Rakel

  4. Aslaug

    2. March 2010

    SVANA!

    Ég trúi ekki að þú ætlar að eyða morðfjár í naglalakk!?

    Það kostar í USA um 9þús kr…Hvað þá á Íslandi og í Evrópu?…Jahérna hér!

    Ekki þess virði…En flott er það, jájá :)

  5. svana

    2. March 2010

    En hvað það er glatað! Já Ísland er alltaf eftir á, og mun eflaust alltaf vera:)
    En ég skal fylgjast með þegar það kemur aftur og kaupi bara handa þér hér úti og sendi heim ef þú vilt?:)

  6. Glys&Glamúr

    2. March 2010

    Já!!! :) jihh Svana það væri æðislegt! Ohh þú ert algjört æði!

  7. Rakel

    2. March 2010

    jáá pant líka pant líka!:)

    -Rakel

  8. svana

    2. March 2010

    HA ÁSLAUG?
    9 þúsund hahahahah
    ok þar sem það var uppselt þá bað ég nú ekki um verðið, en hef keypt mér áður (fyrir nokkru þó) og það kostaði mig um 2-3þúsund:)
    En hinsvegar þá meikar það ekki sens að það sé ódýrara í USA þar sem Chanel er franskt merki, og ætti því að vera ódýrara í Evrópu hefði ég haldið? En auðvitað ekki á Íslandi samt heheh:)
    En ætla að kynna mér verðið fljótlega svo hægt sé að gera upp hug sinn:)
    knús

  9. Anonymous

    2. March 2010

    FULLT AF FLOTTUM naglalökkum í Ice in a bucket, 300 kr. Með glansi.

    Ógó nice. Svipaður sami litur á 5o5 Chanel!

    Lofa xx.

    Eygló

  10. Erla

    2. March 2010

    Ein spurning :D Hehe, hvernig skrifaru á myndina?

    -Takk annars fyrir frábæra síðu, ein af netrúntinum mínum :)

  11. Anonymous

    2. March 2010

    þetta er til í hagkaup og kostar 3990, en liturinn var reyndar búinn :/

  12. Anonymous

    2. March 2010

    ohh mig sárlega vantar brúna!!

  13. karitas

    2. March 2010

    já til í hagkaupum, var að skoða það þar seinasta föstudag og held það hafi alveg örugglega verið til.. í hagkaup garðabæ allavegana.

  14. Glys&Glamúr

    3. March 2010

    Er búin að fjárfesta í einu 505 :) Þó það sé dýrt þá held ég að það sé hverrar krónu virði…

  15. SVART Á HVÍTU

    3. March 2010

    úú nice. Hvar fékkstu það og hvað kostaði það??:)

    -Rakel

  16. Glys&Glamúr

    3. March 2010

    Í Lyf og Heilsu Kringlunni :) Ein góð vinkona mín benti mér á það og það voru víst örfá eftir. Það kostaði 4.074!

  17. Anonymous

    4. March 2010

    ég er búin að splæsa 507 (bleika) á mig og það er bjúúútífúl :)

    er að bíða eftir að 505 komi aftur í búðir hér á kalda fróni..

  18. Anonymous

    4. March 2010

    Ég var þvíí miður bara of sein !
    Uppselt hér á frónni :( langar svo gaaasalega í það !
    Ætlaði að fá mér 507 í sárabætur en ákvað að geyma það bara til betri tíma, vil frekar splæsa einhverju öðru á mig heldur en sárabætu-naglalakki ! :)

  19. SVART Á HVÍTU

    4. March 2010

    Ég keypti lit 505 í GÆR í lyf og heilsu Kringlunni, þannig það má eflaust finna nokkur stykki einhversstaðar:)