….
Finn Juhl
Hann er án efa flottasti húsgagnahönnuður sem uppi hefur verið.
Ég gæfi margt fyrir að eiga Finn Juhl húsgagn, og ekki er verra að byrja að spara núna þar sem húsgögnin eru alls alls ekki ódýr.
Ég hef sjaldan verið jafn heilluð af húsgögnum og ég er af þessu,
Húsgögnin eru FULLKOMIN.
mwahh
Hann Finn Juhl var fyrsti danski móderníski húsgagnahönnuðurinn sem varð þekktur og bjó hann til nýjann húsgagnastíl. Það var tekið eftir honum á heimsvísu og í dag er hann Finn Juhl þekktur sem faðir danska módernismans.
Þess má geta að hann fæddist árið 1912!!
Smekkmaður hann Finn Juhl…..
p.s brot af hönnun Finn Juhl fæst í Epal á morðfjár:)
p.s.2
Í kvöld er konukvöld Snyrtistofunnar Bonitu og hárgreiðslustofunnar Space í Hæðarsmára 6 (á móti Smáralind).
Þar er frábær afsláttur af vörum og stelpurnar sýna nýjungar og bjóða upp á létt dekur.
Svo verða einnig íslenskir hönnuðir/handverkskonur að kynna vörur frá sér og selja!
Léttar veitingar verða í boði og eru ALLIR velkomnir á milli kl.19.30-21-30.
Fannst tilvalið að benda ykkur á þetta, þar sem jú besta vinkona okkar á Bonitu Snyrtistofu:)
Endilega kíkið við
-S
Skrifa Innlegg