Ég rakst á þetta hrikalega sæta DIY verkefni rétt í þessu. Ég kisukonan mikla féll alveg strax fyrir þessu, en ég elska einföld og sniðug DIY verkefni og þetta er alveg hreint frábært:)
Fullkomið helgarverkefni!
Það sem þú þarft til að búa til þessar sætu kisur eru:
Stór gosflaska
Skæri
Hvítt sprey
Svartur og bleikur tússpenni eða málning
Ég sé fyrir mér að þetta komi sérstaklega vel út inni í barnaherbergi með fallegri pottaplöntu í… en að sjálfsögðu er þetta alveg jafn flott inni í eldhúsi eða stofu :)
Skrifa Innlegg