fbpx

Hönnunarmars

Hönnun
Ég hvet ykkur öll til að kíkja á Hönnunarmars sem að byrjaði í dag.
Þetta er í annað sinn sem þessi viðburður er haldinn og er dagskrá HönnunarMars bæði spennandi og glæsileg og hinn mikli fjöldi viðburða, áhugaverðra fyrirlestra og sýninga sem endurspeglar fjölbreytileika íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.

“HönnunarMars er fjögurra daga hátíð fyrir hönnuði, fyrirtæki, áhugafólk um hönnun, almenning, erlenda gesti og ferðamenn. Á HönnunarMars gefst tækifæri til að skoða úrval af þeim fjölbreytilegu verkefnum sem íslenskir hönnuðir og arkitektar starfa að.”

Nánari upplýsingar og dagskrá hátíðarinn er að finna HÉR

Það sem ég mæli með að kíkja á;

20.mars. Fyrirlestraröð í Listasafni Reykjarvíkur.
Marcus Fairs sem er ritstjóri Dezeen, en það er eitt virtasta hönnunartímarit í heiminum.
Mjög skemmtilegur gæji, hitti hann einmitt í dag á fyrirlestri í skólanum.
Þar talar hann ásamt t.d nemendum frá Listaháskólanum sem kynna þrjú verkefni.

18-22 mars. Studio Bility sýna mótuð verk og verk í mótun á Grandagarði 2

Mæli eindregið með að kíkja svo í búðir svosem Epal, Kraum, Mýrin, Kokka og Minju en þar sýna nokkrir hönnuðir nýjar vörur frá sér undir merkinu Lyng sem er mjög falleg lína með vörum fyrir heimilið.

í Epal er einnig sýning á verkum sem unnin eru úr íslensku lerki og birki eftir íslenska hönnuði!

P.s er aðalega að nefna þetta því að vinir mínir eru að sýna sín verk! Kristrún Thors sem sýnir ásamt Studio Bility og svo Garðar Eyjólfsson sem sýnir í Epal.
Því ég get ekki valið úr dagskránni! Finnst þetta allt svo hrikalega spennandi!:)

Sandskálar unnar úr íslenskum fjörusandi eftir Jón Björnsson

Stenslar eftir Megan Herbert. Mjög kjút.
Veggskraut eftir Guðrúnu Lilju

Svo hefst líka Reykjavík Fashion Festival á föstudaginn 19.mars!

Jimundur, ég gæti farið að væla mig langar svo mikið að vera á Íslandi núna!!!

Það besta af þessu öllu er hinsvega Lifandi Bókasafn í Listasafni Reykjarvíkur þann 20.mars frá kl.11-17

“Hönnunarmiðstöð og nemendur í Listaháskóla Íslands standa fyrir Lifandi bókasafni á HönnunarMars í ár.

Sérstaða bókasafnsins er töluverð. Í fyrsta lagi eru einungis bækur um hönnun á safninu. Í öðru lagi er ekki um eiginlegar bækur að ræða, heldur fólk; hönnuði og nemendur í hönnun sem bjóða gestum safnis að fræðast um fag sitt og nám. Í þriðja lagi er bókasafnið einungis opið í einn dag.

Gestum gefst tækifæri til að kíkja á bókasafnið í Hafnarhúsinu laugardaginn 20. mars. Heimsókn á safnið er til-valin fyrir þá sem vilja fræðast um hönnun, nám í hönnun hvers konar og fyrir þá sem vantar hugmyndir, ráð eða bara langar að víkka sjóndeildarhringinn. Bókasafnið inniheldur fjölda bóka um arkitektúr, vöruhönnun, leirkeragerð, innanhússarkitektúr, grafíska hönnun, nám í hönnun, gullsmíði og skartgripahönnun og margt fleira. Gestir safnis leigja sér bók í stutta stund og geta spjallað um fagið, námið og hugmyndirnar.”


SNILLD
Ef það er einhver þarna úti sem að gælir við þá hugmynd að fara í einhverskonar listnám þá er þetta staðurinn!
Ohh gat ekki einhver bara borgað fyrir mig flugmiða heim og ég hefði unnið sem lifandi bók í staðinn haha!
Vona að einhver þarna sé með fræðslu um Design Academy Eindhoven, enda einn besti hönnunarskóli sem finnst:)

En gott í bili.
Allir að skoða dagskránna og mæta:)

-S

D&G strákar

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Anonymous

    18. March 2010

    Ég skal styrkja þig um 10þ til að koma heim;) Þú verður bara að fara safna áheitum til að geta keypt þér miða heim;) Aldrei að vita nema ég kíki annars í staðinn fyrir þig.

    Knús af næturvaktinni
    stóra systir