Von er á nýrri bók frá hjónunum Höllu Báru og Gunnari Sverrissyni hjá Home & Delicious. Það gladdi mig mikið þegar Halla Bára sagði mér nýlega frá því að þau væru að vinna að nýrri bók sem kemur út fyrir jólin, þetta er nefnilega ekki þeirra fyrsta bók, en hinar nutu mikilla vinsælda á sínum tíma og hafa þau fengið margar fyrirspurnir um það hvenær eitthvað nýtt kæmi frá þeim. Þessar tvær myndir fékk ég að láni frá vefsíðu Home & Delicious sem sýna brot úr væntanlegri bók. Heimilin eru í gjörólíkum stíl, en bæði mjög falleg.
Ljósmyndir : Gunnar Sverrisson.
Ég get ekki beðið eftir að fletta í gegnum þessa…
Skrifa Innlegg