Í tilefni þess að Matthew Williamson línan fyrir Lindex er væntanleg í vikunni og auglýsingarnar í þetta sinn á Trendnet eru um kauða, þá datt mér í hug að grafa upp myndir af heimili hönnuðarins svona til að kynnast honum betur. Það er ekki annað hægt að segja en að þetta sé frekar hressandi heimili og litadýrð Matthew Williamson fær aldeilis að njóta sín heima hjá honum jafnt sem í fatahönnun hans.
Ljósmyndir: Andrew Meredith fyrir Elle Decor Italia
Hressandi innlit og þarna má sjá margar góðar hugmyndir sem hægt er að yfirfæra á sitt heimili:)
Skrifa Innlegg