…Er lovely mynd.
Drew Barrymore hefur aldrei verið í miklu uppáhaldi hjá mér og stíllinn hennar hefur hingað til verið frekar mikið blahh.
En VÁ það er nú aldeilis sem stelpan hefur tekið sig á, eða þá að hún hafi fundið sér nýjann stílista!
sæta sæta.
Ég fór á myndina með mínus væntingar en fannst nánast eins og þetta væri mynd um líf mitt á pörtum:) En myndin fjallar um par sem er í fjarsambandi, en ég bjó einmitt í 2 ár frá kærastanum þangað til nýlega.
Mæli virkilega með henni.
Mín helgi mun einkennast af miklu heimadekri,
Setja lit í hárið, lit og plokk á augabrúnir, skrúbb, brúnkukrem og raða skóm og fötum!
Jú og svo yndislegt stelpukvöld hjá henni Rakel minni afmælisstelpu.
(Ætla líka að sparka í rassinn á henni fyrir að vera löt að blogga)
Jessör mikið dekur hér á bæ:)
En ég var að hugsa smá í dag..
Fara ekki allar stelpur á “ljótuna” einhverntíman… ég veit að ég og Rakel eigum til að væla yfir því að vera á ljótunni.
Auðvitað er það samt ekkert nema hugarástand.
Eða er ástæðan frekar leti? Eins og núna þá hef ég ekkert gert fyrir sjálfa mig í margar margar vikur núna og þá hefur líkaminn minn afneitað mér með því að senda mig á “ljótuna”
haha:)
Elska þessa liti.
Elska líka hárlitinn á Drew Barrymore, treysti mér bara ekki í pakka-aflitun:)
-S
4 Skilaboð
-
já ég var einmitt að pæla í þessari breytingu á henni um daginn! Ég ætla að giska á nýjan stílista ;)
Mér finnst hárið hennar samt alveg fáránlega flott, langar í svona lit! -
Ég er alveg sammála, finnst Drew æðisleg, tjek þessar myndir, gordjöss:
-
Já hingað til núna ætla ég að giska á að hún hafi klætt sig sjálf. Og núna: einhver stílisti snillingur.
En það skiptir svo sem engum máli ; hún er ekkert smá flott!Já er sjálf að rísa uppúr veikindaljótunni ógurlegu. Djísus! sú ætlaði ekki að fara án þess að vera með læti…
En hún fór að lokum. Eftir að ég fór á sýklalyf það er að segja ha ha ;-) -
Eruð þið að grínast með hárið á gellunni.. djöfull er það FLOTT!!
-KT
Skrifa Innlegg