Í dag er dagur #4 í veikindum, þá er lítið annað hægt að gera en að flokka fataskápinn og raða skóm.
Hver ákvað að skór væru best geymdir í anddyrinu?
Gullfallegur vintage skóskápur
‘Innrammaðar’ flíkur
Hreindýrahorn geta verið hin fínasta fatageymsla
Fallegt að geyma hattana sína svona
Mér finnst í fínu lagi að fötin mín og skór séu stundum út um allar trissur hér heima, en sumir eru ekki jafn kátir með það og ég! Ég held að málið sé að ég þurfi að nálgast þetta á aðeins fagurfræðilegri hátt, eins og myndirnar hér að ofan sýna… Þá mögulega kemst ég upp með það einn daginn að hafa eins og eitt skópar í eldhúsinu og kjólinn á stofuveggnum!
Skrifa Innlegg