Með nýju ári þá hellist oft framkvæmdargleði yfir suma, margir ákveða að taka í gegn viss rými á heimilinu. Fyrir þá sem eru í baðherbergjahugleiðingum þá er hér eitt gordjöss! (p.s. mamma taktu niður punkta;)
Styling: Åsa Dyberg Foto: Marcus Lawett för Ballingslöv Myndir fengnar: via
Fölbleikur veggurinn á bakvið vaskinn, koparlituð blöndunartæki, baðhandklæðahengi úr loftinu og svartur veggur! Einnig hvernig nokkrum fallegum smáhlutum er leyft að njóta sín, uppáhaldskremið, gott ilmvatn og skartgripakrús.
Vitiði… ég fæ vatn í munninn!
Er það bara eðlilegt haha
Skrifa Innlegg