18 Skilaboð
-
Ditto on that!
-
váá sammála!
-
þau eru samt yfirleitt í sömu búningum á undankeppninni og svo lokakeppninni :/ annars fannst mér best þegar kjólnum var líkt við blóðuga steik (http://baggalutur.is/frettir.php?id=5009)
-
Mér fannst reyndar kjóllinn sjálfur ekkert svo slæmur… hreyfðist fallega þegar hún dillaði sér – hins vegar er “skrautið” yfir axlirnar og brjóstin gera hana miklu stærri að ofan. Það fannst mér ótrúlega unflattering.
Verri fundust mér bakraddirnar – þær voru eins og litlar rjómabollur í sínum kjólum :S
-
Það má ekki breyta atriðinu frá undankeppninni.. svo hún verður í sama kjólnum í kvöld.
-
Ríkissjónvarpið velur náttúrulega sem slíkt ekki þessar flíkur en þó sumir (ég stundum þ.m.t.) séu orðnir leiðir á Júníform þá ber Birta greinilega höfuð og herðar yfir aðra íslenska hönnuði því konur hreinlega elska þessa kjóla – Ragnhildur Steinunn og Hera eru greinilega í þeim hópi. Svo eru aðrar eins og t.d. Þóra Arnórs sem er eiginlega alltaf í íslenskri hönnun en ekki Júníform … fólk tekur bara ekki jafnmikið eftir því – örugglega bara því þau föt eru ekki jafn áberandi og auðþekkjanleg og Júníform fötin.
-
Ég elska margt frá Birtu, tek það fram.
En þessi kjóll á Heru finnst mér hræðilegur!!! Gerir hana svo mikið feitari en hún er, liturinn ekki smart og bara boring dress. Get ekki sagt annað!Og verð líka að segja það að þessi auglýsingabrella hennar Birtu að setja alla nýju línuna sína núna á facebook finnst mér virkilega óaðlaðandi. Það er ekki gaman að kaupa sér 40þúsund króna kjól og allar vinkonur þínar eru löngu búnar að sjá hann á facebook þegar þú mætir svo í honum í brúðkaup.
Annað, er að vera svoolítið leið á þessu sama sniði hjá henni. Gerir sama pilsið á lang flesta kjólana sína og setur svo eitthvað smá dúll í hálsmálið.
Fyrir svona dýra “hönnun” þætti manni nú alveg í lagi að sjá smá breytingar ári til árs. :)Annað – er orðin mjöög sammála þessu með Rúv. Þetta er orðið frekar hallærislegt.
Mamma hennar eða frænka hlítur bara að vinna á Rúv ??kveðja
Sólrún -
Pabbi hennar og stjúpmamma hennar vinna í RÚV.
-
Takk.. þarna kom skýringin!
þetta er til skammar… -
tek undir kommentið hér að ofan. Rúv velur ekki fötin á starfsfólkið, þau gera það sjálf. Fréttaritarar, þulur, spjallþáttastjórnendur og söngvarar ráða sínum fötum sjálfir. Þætti ykkur ekki hálf hallærislegt að mæta í vinnunna einn daginn og það væri búið að setja bann á að mæta í H&M fötum í vinnuna. Alveg sama hvernig þau litu út þá mætti ekki vera í þeim í vinnunni. Þetta er spurning um að ráða sér sjálfur og velja í hverju þú ert. Heru finnst þessi kjóll flottur og mér finnst hún flott í honum, afhverju má hún ekki ráða sér sjálf eins og við hin. Eiga Hera og Ragnhildur nú að fara að ganga í fötum sem þeim finnst kannski ljót því einhver annar en Birta hannar það? þær bera enga ábyrgð á því að íslenskir hönnuðir fái auglýsingu. Þið ættuð kannski frekar að fara frammá það að Rúv væri með hönnunarþátt einu sinni í viku sem færi milli vöru- og fatahönnuða og kynntu þá, held að það sé einfaldasta leiðin.
verð síðan að viðurkenna að mér finnst þessi pirringu/skítkast á einn hönnuð vera orðið svolítið þreytt. Kom það ekki fram í stóra kjóla málinu að þessir starfsmenn velja sín eigin föt og þótt rúv sé ríkis rekið þá getum við ekki ætlast til þess að við(almúginn) ráðum hverju starsfólkið klæðist.
kv.Valdís Ragna
-
Æji þær ráða nottlega hvernig föt þær velja sér en mér finnst bara að RÚV ætti að hafa einhverjar reglur á þessu.. Ég er ekkert fjúríus yfir þessu samt :D
-KT
-
sammála þér Valdís Ragna…í alvöru þetta endalausa tuð er orðið svooo þreitt..
-
Það er nú bara hallærislegt að halda því fram að rúv hafi eitthvað með fataval fólksins að gera.
Skil síðan heldur ekki þetta endalausa skítkast á aumingja Birtu.
-margrét- -
Það er nú allt í lagi að velta málinu fyrir sér án þess að verða sár.
Þetta er auðvitað mjög stór kynning fyrir landið okkar og í fínu lagi að fleiri hönnuðir hefðu sömu tækifæri til að koma hönnun sinni á framfæri og Júniform. Og einmitt því þetta er svona mikil landkynning sem að við borgum fyrir þá ætti þetta bara alls ekki að snúast um persónulegan smekk Heru!
Þetta er ekkert skítkast, ég tók skýrt fram að mér þyki Birta hanna mjög töff og flottar flíkur og á sjálf flík frá henni.
En þegar þegar það kemur að júróvision þá er nú í góðu lagi að hafa álit á kjólunum eins og lögunum og ekki við öðru að búast. Væri heimurinn ekki frekar boring ef öllum þætti alltaf allt vera æðislegt og allir alltaf svaka smart:)
-Svana -
þessi kjóll er bara nákvæmlega sama snið og hún er búin að vera með i nokkur ár….ROSALEGA ÞREYTT! plús að Hera er frekar mikil um sig og þessi kjóll var alls ekkert að gera hana eitthvað flottari i laginu :/:/ mér persónulega fannst hún einsog hvalur uppá þessu sviði útaf kjólnum :/ og svo eru til svo margir aðrir flottir hönnuðir á islandi einsog t.d. Steinun,Andrea,Aftur,KvK svo eitthvað sé nefnt.
-
Halló hvaða snið mundi henta henni betur. Held að einmitt þetta snið sé bara ágætt á hana. Þetta þarf að vera svolítill hólkur og sem minnst aðsniðið að neðan.
Svava Ásgeirs.
-
Það hafa allir hönnuðir nákvæmlega sömu tækifæri á að koma sinni hönnun á framfæri.
Þetta ræðst bara af því hvað hverjum þykir flott og hvað ekki og Júníform hefur greinilega bara hitt í mark. Fráleitt að fara að stjórna því hverju fólk klæðist. -
mér finnst Birta alveg missniðug. Á margar ótrúlega flottar og smart flíkur en virðist samt eiga eitthvað erfitt með að klæða eftir vaxtarlagi og þannig..allavega eins og þessi kjóll..af hverju náði hann ekki niðrí gólf? það hefði lengt hana og grennt, en þessi stytting og ö..púffið gerði hana feitari og styttri..mér fannst bakraddasöngkonurnar í fallegri kjólum samt, en þeir hefðu ekki farið Heru vel heldur..en jæja
en ég er svooooo sammála þér með þessar “auglýsingar” ég meina, mér finnst mjög flott að þeir kynni hana:) en mér finnst að aðrir ættu að vera kynntir líka. Markmiðið væri kannski að kynna almennt íslenska hönnun, einn daginn Júníform, annan daginn KOW, hinn daginn Forynja..og jadda jadda..nei bara svona:) alls kyns..það væri gaman:)
Skrifa Innlegg